
Iðan fræðslusetur

Gervigreind í starfi iðnaðarmanns
Hagnýtt hálfs dags námskeið fyrir iðnaðarmenn sem vilja læra að nýta gervigreind í daglegu starfi. Þátttakendur kynnast einföldum og gagnlegum leiðum til að nota gervigreind meðal annars við upplýsingaleit, tilboðsgerð, skipulag og samskipti.
Fyrir hverja:
Námskeiðið er ætlað iðnaðarmönnum, bæði sjálfstætt starfandi og þeim sem starfa hjá fyrirtækjum, sem vilja nýta gervigreind til að einfalda verkefni, spara tíma og bæta vinnubrögð. Ekki er gerð krafa um fyrri þekkingu á gervigreind.
Markmið:
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist hagnýta færni í notkun gervigreindar sem nýtist þeim í starfi. Áhersla verður lögð á að þátttakendur læri að nota aðgengileg gervigreindartól á markvissan og ábyrgan hátt.
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Grunnatriði gervigreindar og notkun hennar í iðngreinum.
- Notkun gervigreindartóla á borð við Claude.
- Upplýsingaleit, tilboðsgerð, skipulag og samskipti.
- Tengingar við tölvupóst, dagatal og önnur gagnleg kerfi.
- Hagnýtar æfingar, ábyrg notkun og persónuvernd.
Að loknu námskeiði á nemandi að geta:
- notað gervigreindartól við dagleg verkefni;
- sett fram skýrar og markvissar fyrirspurnir;
- nýtt gervigreind við upplýsingaleit, skipulag, tilboðsgerð og samskipti;
- metið niðurstöður og notað tæknina á öruggan og ábyrgan hátt.
Aðrar upplýsingar:
Þátttakendur á námskeiðinu þurfa að taka með sér tölvu
Kennarar á námskeiðinu eru Hjörtur Sigurðsson sérfræðingur í gervigreind, og Axel Axelsson, nemi í pípulögnum. Saman tengja þeir þekkingu á gervigreind við hagnýta reynslu og raunveruleg verkefni úr starfsumhverfi iðnaðarmanna.
Hefst
18. nóv. 2026Tegund
StaðnámTímalengd
1 skiptiDeila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar
Meira frá Iðan fræðslusetur
3D skönnun og endurgerð hluta
Iðan fræðsluseturStaðnám16. nóv.
AutoCAD og AutoCAD LT grunnnámskeið
Iðan fræðsluseturStaðnám18. nóv.
Eldsmíði í Höfnum
Iðan fræðsluseturStaðnám13. nóv.
Trérennismíði
Iðan fræðsluseturStaðnám14. nóv.
Brunaöryggi við byggingaframkvæmdir
Iðan fræðslusetur17. nóv.
Tequila & Mezcal Masterclass
Iðan fræðsluseturStaðnám13. nóv.
Svansvottaðar byggingar
Iðan fræðsluseturStaðnám12. nóv.
HACCP 2 – Innra eftirlit og ábyrgð
Iðan fræðsluseturStaðnám10. nóv.
Hjólastilling
Iðan fræðsluseturStaðnám11. nóv.
Varðveisla eldri húsa
Iðan fræðsluseturStaðnám13. nóv.
Tilraunaeldhúsið - Nútíma matargerðalist
Iðan fræðsluseturStaðnám11. nóv.
Ábyrgð byggingastjóra
Iðan fræðslusetur11. nóv.
Hljóðvist í húsum
Iðan fræðsluseturStaðnám10. nóv.
Áhættumat
Iðan fræðsluseturFjarnám09. nóv.
CE merkingar byggingarvara
Iðan fræðslusetur10. nóv.