

Hernaðarhyggja og hervæðing
Hvers vegna stríð – og hvernig hefur það áhrif á okkur öll?
Hvernig mótast viðhorf okkar til stríðs og friðar? Hvað ýtir undir ofbeldi – og hvað getur dregið úr því? Þetta námskeið veitir þér ný sjónarhorn á stríð og frið með áherslu á hvernig sögur, hugmyndir og orðræða móta skilning okkar á skipulögðu ofbeldi og samstöðu.
Áherslan er ekki á sagnfræði og alþjóðapólitík heldur er kafað dýpra – í rætur hugmynda um hernaðarhyggju, hervæðingu og hvernig þessi hugmyndakerfi verða hluti af daglegu lífi okkar.
Kynntir verða höfundar og kenningar sem hjálpa til við að varpa ljósi á tilgang og áhrif stríðs. Kennari mun einnig taka dæmi frá starfi á stríðssvæðum. Auk þess verður fjallað um stríðsorðræðu samtímans og þátttakendur fá tækifæri til að skoða, ræða og greina hvernig hernaðarhyggja hefur áhrif á samfélagið og þeirra eigin hugmyndir um stríð og frið.
Komdu huganum á hreyfingu og tryggðu þér sæti!