
Fastus
Vinnum með þeim bestu

Um vinnustaðinn
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.
Jafnvægisvog FKA
Jafnlaunavottun
Creditinfo - Framúrskarandi fyrirtæki 2024
Höfðabakki 7
51-200
starfsmenn
Hreyfing
Öllu starfsfólki býðst styrkur til íþróttaiðkunar
Matur
Niðurgreiddur heitur matur í hádeginu mánudaga til föstudaga
Vinnutími
Í mannauðsstefnu fyrirtækisins er lögð áhersla á sveigjanleika í vinnutíma. Útfærslur kunna að vera mismunandi eftir deildum og eðli starfa, en leitast er við að tryggja eins mikinn sveigjanleika og aðstæður leyfa.