
Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.

Tæknimaður í þjónustu drykkjartækja
Fastus leitar að starfsmanni til að sinna einfaldari viðgerðum, yfirferð og skoðun tækja. Reglubundinni þjónustu og hreinsunum á búnaði. Önnur verkefni sem heyra undir starfið er gerð verklýsinga fyrir unnin verk og fagleg ráðgjöf. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og frumkvæði í starfi.
Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.
Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þrif og hreinsun á tækjum
- Yfirferð og reglubundið eftirlit með tækjum
- Léttar viðgerðir á þeim búnaði sem fyrirtækið þjónustar
- Ábyrgð á verkskráningu
- Tilfallandi útkeyrsla og þjónusta fyrir viðskiptavini Fastus
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti
- Sjálfstæði og lausnarmiðuð hugsun
- Bílpróf
- Góð samskiptafærni á íslensku og ensku
Auglýsing birt25. mars 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÖkuréttindiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Uppsetningar
Titus

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Bílrúðuísetningar
Bílrúðan ehf

Bifvélavirki / handlaginn einstaklingur
Katlatrack ehf

Verkstæði
EAK ehf.

Bifvélavirki, vélvirki
Aflvélar ehf.

Rafvirki
Hitatækni ehf

Vélvirki, Stálsmiður, Járniðnaðar maður.
Cyltech tjakkalausnir

Vélvirki á Grundartanga
HD Iðn- og tækniþjónusta