
Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.

Tæknimaður heilbrigðistækja
Markmið starfsins er að tryggja öruggan, áreiðanlegan og skilvirkan rekstur heilbrigðis- og hjálpartækja með viðgerðum, uppsetningu og þjónustu við tæki sem seld eru hjá Fastus til fjölbreyttra viðskiptavina. Önnur verkefni sem heyra undir starfið er meðal annars fagleg ráðgjöf, lausn tæknilegra mála og stuðningur við aðra tæknimenn.
Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.
Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meginábyrgð á tilteknum vörumerkjum og tækjaflokkum.
- Viðhaldi og viðgerðum á fjölbreyttum heilbrigðis- og hjálpartækjum.
- Uppsetningar á heilbrigðistækjum.
- Samsetning og prófanir á hjálpartækjum.
- Að tæki uppfylli öryggis- og gæðakröfur við notkun.
- Faglegri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila.
- Samskiptum við viðskiptavini og ráðgjöf um notkun og viðhald.
- Réttri skráningu og eftirfylgni verkefna.
- Stuðningur og leiðsögn annarra tæknimanna.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti
- Sjálfstæði og lausnarmiðuð hugsun
- Bílpróf
- Vilji og geta til þess að sækja námskeið hjá erlendum framleiðendum
- Góð samskiptafærni á íslensku og ensku
- Góð almenn tækni- og tölvukunnátta
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÖkuréttindiRafvirkjunSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Menntaður rafvirki óskast í 50% starf - góð laun í boði
Loftvist

Rafvirkjar í tímabundið starf
Rafal ehf.

Uppsetningar
Titus

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

YAMAHA motor viðhald og viðgerðir
Aflvélar ehf.

Öryggisstjóri (HSE Manager)
atNorth

Sérfræðingur í stjórn- og eftirlitskerfum (Control SME)
atNorth

Sala og þjónusta búnaðar, varahluta og tæknilausna
Aflhlutir ehf

Bílrúðuísetningar
Bílrúðan ehf

Bifvélavirki / handlaginn einstaklingur
Katlatrack ehf

Verkstæði
EAK ehf.

Söluráðgjafi óskast í S.Guðjónsson
S. Guðjónsson