Heilsuvernd
Heilsuvernd
Heilsuvernd

Yfirlæknir öldrunarsviðs

Heilsuvernd óskar eftir að ráða yfirlækni öldrunarsviðs. Við leitum að einstaklingi sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi auk reynslu og hæfni til að leiða áfram faglegt starf öldrunarsviðs.


Þjónusta öldrunarsviðs Heilsuverndar er fjölbreytt og snýr m.a. að læknisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu, ráðgjöf tengda forvarnaverkefnum í öldrunarmálum auk þróunar nýrrar þjónustu á Vífilstöðum þar sem áhersla verður lögð á líknar- og bráðaþjónustu við aldraða til framtíðar.

Leitað er eftir sérfræðingi í öldrunarlækningum með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þróun og þjónustu sviðsins, auk þess að sinna gæða- og umbótastarfi.


Heilsuvernd er starfrækt í björtu og nýju húsnæði á besta stað við Elliðaárdalinn. Starfsandi og aðstaða er til fyrirmyndar og við höfum metnað til að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu fyrir alla sem til okkar leita.


Um er að ræða fullt starf en hlutastarf kemur til greina.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í öldrunarlækningum
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða þróun og umbætur
Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð og ábyrgð á starfsmönnum sviðsins
Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun á verkefnum innan öldrunarsviðs Heilsuverndar.
Ábyrgð á áætlanagerð og stefnumótun
Dagleg stjórnun
Auglýsing birt7. nóvember 2022
Umsóknarfrestur9. desember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar