Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Yfirlæknir bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands

Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða yfirlækni bráðamóttöku HSU á Selfossi.

HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.

Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.

Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.

Starfið er leiðtoga- og stjórnunarstarf sem felur í sér faglega, stjórnunarlega og rekstrarlega ábyrgð á starfsemi bráðamóttökunnar. Einnig stýrir yfirlæknir bráðaþjónustu utan spítala á Suðurlandi í nánu samstarfi við yfirmann sjúkraflutninga.

Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarfi, kennslu, rannsóknir, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í sérgreininni í nánu samstarfi við framkvæmdarstjóra lækninga og annað starfsfólk.

Um er að ræða fullt starf sem er bæði áhugavert og krefjandi og reynir á mikla þekkingu í læknisfræði, samskiptahæfni og fagmennsku.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun bráðalækninga og utanspítalaþjónustu við HSU, þ.m.t. kennslu og vísindastarfi í samráði við framkvæmdastjóra lækninga
  • Fjárhagsleg ábyrgð í samráði við framkvæmdastjóra lækninga
  • Starfsmannaábyrgð, ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni í samráði við framkvæmdastjóra lækninga
  • Samstarf við aðrar sérgreinar sjúkrahússins, heilsugæslu og hjúkrunarheimili
  • Þátttaka í innanhússfræðslu
  • Þátttaka í fjölbreyttum nýsköpunarverkefnum á vegum HSU eins og t.d. innleiðingu á sjúkraskráningarkerfinu Leviosa
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sérfræðileyfi
  • Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
  • Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
  • Umtalsverð færni og virkni á sviði bráðalækninga
  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum æskileg
Auglýsing birt19. maí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Árvegur 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar