

HSU óskar eftir að ráða sjúkraliða á bráðamóttöku Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða sjúkraliða á Bráðamóttöku HSU Selfossi frá og með hausti.
HSU veitir heilsugæslu-, sjúkrahús- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
-
Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
-
Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
-
Um er að ræða vaktavinnu.
-
Sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun
-
Starfsleyfi landlæknis
-
Íslenskukunnátta skilyrði
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
-
Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
-
Reynsla af vinnu á bráðamóttöku er kostur

















