Vörutiltekt í vefverslun ELKO
ELKO leitar að starfsfólki til starfa í vefverslun. Starfið felur í sér tiltekt og afgreiðslu pantana auk eftirkaupaþjónustu og úrlausn erinda viðskiptavina.
Starfið er tímabundið yfir háannatíma í nóvember og desember.
Helstu verkefni
- Vörutiltekt
- Afgreiðsla á vefpöntunum
- Úrlausn erinda
- Eftirkaupaþjónusta til viðskiptavina
Hæfniskröfur
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Hreint sakavottorð
Vinnutími
Vinnutími er eftir vaktafyrirkomulagi. Starfshlutfall verður eftir samkomulagi í nóvember, í desember er æskilegt að viðkomandi geti verið í fullu starfi.
ELKO leggur mikið upp úr góðri fræðslu og nýliðamóttöku fyrir sitt starfsfólk og vann ELKO menntaverðlaun atvinnulífsins árið 2024.
ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Fríðindi í starfi
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Niðurgreiddur hádegismatur
Frekari upplýsingar um starfið veitir Elvar Orri (elvarorri@elko.is).
Umsóknarfrestur er til og með 16. október.
Hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um 💙💚💙