BM Vallá
BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu- og múrvörum fyrir íslenskan byggingariðnað. Framleiðsla fyrirtækisins byggir á þekkingu, reynslu og gæðum sem endast og standast ströngustu kröfur við íslenskar aðstæður. Stjórnkerfi fyrirtækisins er gæðavottað skv. ISO 9001 og er BM Vallá eini steypuframleiðandinn á landinu með þá vottun.
Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og hefur BM Vallá sett sér það metnaðarfulla markmið að verða umhverfisvænsti steypuframleiðandi landsins. Markvisst er stefnt að því að starfsemi og steypuframleiðsla BM Vallár verði kolefnishlutlaus árið 2030.
Fyrirtækið leggur mikla áherslu á að skapa gott vinnuumhverfi og vinnustaðamenningu. Lögð er áhersla á góð starfsskilyrði og möguleika til starfsþróunar ásamt jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum.
BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., sem á að auki Björgun og Sementsverksmiðjuna. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.
Sölu- og lagerstarf á Akureyri
BM Vallá leitar að sölu- og lagerstarfsmanni í verslun fyrirtækisins á Akureyri.
Starfið felur í sér í afgreiðslu og ráðgjöf til viðskiptavina, ásamt því að sjá um móttöku og frágang á lager. Um er að ræða framtíðarstarf með skilgreindan vinnutíma frá kl. 7.45-17.00.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala og afgreiðsla í verslun
- Afhending á vörum af lager
- Tiltekt, frágangur og skipulag
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Vinnuvélaréttindi (J) er kostur
- Góð almenn tölvuþekking
- Þjónustulund og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslensku og/eða enskukunnátta
Auglýsing birt4. október 2024
Umsóknarfrestur14. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaMeðalhæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Sjafnargata 3, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaLagerstörfLyftaraprófSölumennska
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Starfsmaður á veitingarstað og í verslun/Employees wanted
Public deli ehf.
Óskum eftir fólki í afgreiðslu og þjónastörf í hlutastarf
Íslenska Flatbakan
Ræstingar / Cleaning
Skógasafn
Vaktstjóri
Ingólfsskáli veitingahús
UN Women á Íslandi leitar að liðsstyrk!
UN Women á Íslandi
Starfsmaður á lager
Rafkaup
Sölumaður í verslun
Rafkaup
Metnaðarfullur móttökusnillingur
Hreyfing
Afgreiðslufulltrúi / Front Desk Agent
Lava Car Rental
Kvenkyns sundlaugavörður
Fjarðabyggð
Lagerstarfsmaður
Lindex
30-50% starf á Akureyri
Flying Tiger Copenhagen