Þjónusturáðgjafi í ELKO Skeifunni
Hefur þú brennandi áhuga á þjónustu?
Langar þig að vinna á skemmtilegum vinnustað með fjölbreytt verkefni og frábæru samstarfsfólki?
Við erum að leita eftir lausnamiðuðum einstaklingi í teymið okkar í þjónustudeildinni.
Helstu verkefni
-
Almenn eftirkaupaþjónusta.
-
Afhending og móttaka á vefpöntunum.
-
Skráning á vörum í ábyrgðar- og tryggingarferli.
-
Samskipti við viðskiptavini.
-
Önnur tilfallandi verkefni.
Hæfniskröfur
-
Umsækendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri
-
Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
-
Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
-
Stundvísi og áreiðanleiki
-
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
-
Reynsla af þjónustustörfum er kostur
-
Hreint sakavottorð
Vinnutími
Tekur mið af opnunartíma verslunar sem er 11:00 - 19:00 en getur þó breyst vegna starfsmannafræðslu og funda.
ELKO leggur mikið upp úr góðri fræðslu og nýliðamóttöku fyrir sitt starfsfólk og vann ELKO menntaverðlaun atvinnulífsins árið 2024.
ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Fríðindi í starfi
-
Árlegur líkamsræktarstyrkur
-
Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni og N1
-
Aðgangur að velferðarpakka ELKO
-
Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
-
Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
-
Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
-
Niðurgreiddur hádegismatur
Frekari upplýsingar um starfið veitir Magnús Torfi (magnus@elko.is).
Umsóknarfrestur er til og með 9. október.
Hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um. 💙💚💙