VÖRUSTJÓRI
Fjármála og efnahagsráðuneytið leitar að vörustjóra gagna og tæknilegrar þróunar hjá Stafrænu Íslandi. Viðkomandi aðili verður leiðandi í vefþjónustuvæðingu hins opinbera og innleiðingu á Straumnum (e. X-Road).
Straumurinn er gagnaflutningslag sem ætlað er að auðvelda samskipti á milli upplýsingakerfa á öruggan hátt og er byggður á opnum hugbúnaði sem fyrst var þróaður af Finnlandi og Eistlandi. Nánari upplýsingar á: https://island.is/straumurinn, https://www.niis.org/, https://x-road.global/
Stafrænt Ísland er starfseining innan fjármála-og efnahagsráðuneytisins. Hlutverk hennar er að vinna með ráðuneytum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og tryggja þannig skýr, einföld og hraðvirk samskipti. Stærsta verkefni Stafræns Íslands er þróun þjónustugáttarinnar Ísland.is.
Leitað er að drífandi sérfræðingi sem á auðvelt með að fá fólk í lið með sér og hefur brennandi áhuga á því að vinna að ofangreindum verkefnum í samstarfi við fjölmargar opinberar stofnanir. Starfið felur meðal annars í sér ábyrgð á innleiðingu Straumsins, vöruþróun vefþjónustulausna í samstarfi við opinbera aðila og þátttöku í alþjóðlegum samskiptum við X-Road samfélagið.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða starfsreynsla á sviði tölvunarfræði, verkfræði, stafrænnar hönnunar eða tengdum greinum sem nýtist vel til úrlausnar ofangreindra verkefna.
Reynsla og þekking af vörustjórnun hugbúnaðarlausna og stjórnun þverfaglegra teyma í hugbúnaðarþróun.
Reynsla af innleiðingu umfangsmikilla tæknilausna og stafrænni umbreytingu.
Mjög góð þekking og skilningur á uppbyggingu upplýsingatæknikerfa, hugbúnaðarlausna og notkun vefþjónusta (e. API).
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund.
Góð skipulagshæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Metnaður til að ná árangri, vilji til breytinga og geta til að leiða framfarir.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leiðir vinnu við að gera helstu grunnskrár ríkisins aðgengilegar í vefþjónustum í samstarfi við stofnanir.
Stýrir vöruþróun hugbúnaðarteyma á vefþjónustum fyrir Stafrænt Ísland.
Gerð vegvísa (e. roadmap) fyrir stafræn umbreytingarverkefni á sviði gagnasamskipta (s.s. vefþjónustur) í samstarfi við opinberar stofnanir.
Ráðgjöf til opinberra aðila um tæknilega innviði og uppbyggingu á gagnaskipan.
Forgangsröðun verkefna, mótun-og eftirfylgni verkáætlana.
Samskipti við hugbúnaðarhús, tæknilega birgja og stofnanir.
Þátttaka í þróun á innviðum og kjarnaþjónustum Ísland.is.