Innnes ehf.
Innnes ehf.

Vöruhúsastjóri

Langar þig að leiða eitt fullkomnasta og tæknivæddasta vöruhús landsins?

Innnes leitar að öflugum leiðtoga til að stýra einu fullkomnasta og tæknivæddasta vöruhúsi landsins. Hér gefst einstakt tækifæri til að leiða rekstur þar sem hátæknilegt vöruhús og ferskvörudreifing vinna saman að því að tryggja framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini um allt land.

Við leitum að einstaklingi sem hefur metnað til að ná framúrskarandi árangri, byggja upp sterka liðsheild og leiða stöðugar umbætur. Vöruhúsastjóri hefur bæði rekstrarlega yfirsýn og getu til að virkja fólk, nýtir gögn, tækni og sjálfvirkni til að bæta afköst og gæði og skapar menningu þar sem öryggi, matvælaöryggi og þjónusta eru órjúfanlegur hluti af daglegum rekstri.

Þetta er lykilhlutverk innan Innnes þar sem viðkomandi einstaklingur hefur raunveruleg áhrif á árangur fyrirtækisins og þróun eins mikilvægasta hlekksins í virðiskeðjunni.

Hjá Innnes stýrir vöruhúsastjóri ekki aðeins vöruhúsi, heldur leiðir hjarta dreifikerfis sem sér til þess að þúsundir vara skili sér á réttum tíma, á réttan stað og á hverjum einasta degi.

Helstu verkefni:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri vöruhússins og tryggja öruggt, skilvirkt og hagkvæmt vöruflæði frá móttöku til afhendingar.
  • Leiða og þróa öflugt teymi stjórnenda og starfsfólks með skýra áherslu á árangur, samstarf og vellíðan.
  • Áætlanagerð ásamt uppsetningu og umsjón lykilmælikvarða.
  • Móta og styðja rekstur með markvissri nýtingu sjálfvirkni, stafrænum lausnum og rekstrargögnum.
  • Stuðla að öflugri öryggis-, þjónustu- og umbótamenningu.
  • Ábyrgð á afkastagetu, gæðum, kostnaði, þjónustustigi og framleiðni.
  • Tryggja að öryggi, matvælaöryggi og gæðastaðlar séu ávallt í fyrirrúmi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Reynsla af leiðtogastarfi og stjórnun starfsfólks.
  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Lögð er rík áhersla á þjónustulund í öllum störfum félagsins með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.
  • Áhugi á sjálfvirkum lagerlausnum.
  • Þekking á gagnadrifinni ákvarðanatöku og rekstrargreiningu.

Innnes er eitt öflugasta og framsæknasta innflutningsfyrirtæki landsins á sviði matvæla. Hjá Innnes starfa um 250 manns og eru starfsstöðvar í Reykjavík og á Akureyri. Á hverjum degi treysta þúsundir neytenda, verslana, veitingastaða og annarra viðskiptavina á að vörur sem Innnes flytur inn og dreifir skili sér á réttum tíma, við rétt hitastig og í hæstu gæðum.

Á bak við þá þjónustu stendur ein fullkomnasta dreifingarmiðstöð landsins þar sem hátæknilegt vöruhús, öflug ferskvörudreifing og framsæknar stafrænar lausnir vinna saman að því að skapa hraða, nákvæmni og áreiðanleika í hverju einasta skrefi vöruflæðisins.

Hjá Innnes starfar metnaðarfullt teymi sem trúir því að árangur verði til með gleði og fagmennsku og stöðugum umbótum. Fyrirtækið fjárfestir markvisst í nýrri tækni, sjálfvirkni og þróun starfsfólks til að vera ávallt skrefi á undan og veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu. Nánari upplýsingar um Innes er að finna á www.innnes.is

Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst 2026.

Umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsjón með starfinu hafa Jensína K. Böðvarsdóttir ([email protected]) og Bjarki Pétursson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt7. ágúst 2026
Umsóknarfrestur17. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Korngarðar 3, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vörustjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar