
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs.
Aðild að byggðasamlaginu eiga Ásahreppur, Rangárþings eystra og Rangárþing ytra. Hlutverk byggðasamlagsins er að annast lögbundin og samningsbundin verkefni. Felst það einkum í að vinna að forvörnum, eftirliti og veita fyrstu viðbrögð til að verna líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir og afla nayðsunlegra tækja í samráði við Mannvirkjastofnun.
Varaslökkviliðsstjóri
Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. óska eftir að ráða varaslökkviliðsstjóra.
Starfið er laust frá og með 1. september 2026.
Starfsemi Brunavarna Rangárvallasýslu bs. heyrir undir sveitarfélögin í Rangárvallasýslu, Ásahrepp, Rangárþing ytra og Rangárþing eystra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Varaslökkviliðsstjóri er staðgengill slökkviliðsstjóra og ber ábyrgð á faglegri starfsemi Brunavarna Rangárvallasýslu í samvinnu við slökkviliðsstjóra.
- Umsjón með þjálfun slökkviliðsins ásamt slökkviliðsstjóra.
- Daglegt eldvarnareftirlit, úttektir og yfirferð uppdrátta í samvinnu við slökkviliðsstjóra.
- Viðhald bíla og búnaðar slökkviliðsins.
- Telst til vakthafandi liðsheildar og sinnir útköllum þegar þörf er á.
- Ýmis verkefni s.s. ráðgjöf og fræðslu.
- Starfar í samræmi við lög, reglugerðir, starfslýsingu og samþykktir Byggðarsamlagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjendi skal uppfylla skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna og laga nr. 75/2000 um brunamál.
- Vera með löggildingu sem slökkviliðsmaður.
- Hafa lokið námi I og II í eldvarnareftirliti fyrir eldvarnareftirlitsmenn frá HMS.
- Hafa aukin ökuréttindi (C) til að stjórna vörubifreið.
- Hafa lokið stjórnenda- og þjálfunarstjóranámi frá HMS.
- Menntun í vélvirkjun eða sambærileg menntun er kostur.
- Hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður.
- Hafa starfsréttindi sem reykkafari er kostur.
- Umsækjendi skal hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigður, reglusamur og háttvís, hafa góða sjón og heyrn og ekki vera haldinn lofthræðslu eða innilokunarkennd.
- Hafa góða leiðtoga- og stjórnunarhæfni ásamt færni í mannlegum samskiptum og góðan samstarfsvilja.
- Sjálfstæði í störfum, auk góðrar skipulagshæfni, sveigjanleika, víðsýni og vilja til að tileinka sér nýjungar.
- Umsækandi þarf að geta starfað undir álagi og vera tilbúinn að gangast undir ítarlega læknisskoðun og þrekpróf.
- Hafa góða almenna tölvukunnáttu.
- Góð íslensku- og enskukunnátta er æskileg.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög.
Auglýsing birt24. júlí 2026
Umsóknarfrestur9. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hlíðarvegur 16
Laufskálum 2
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í verksmiðju TDK Foil Iceland ehf á Akureyri.
TDK Foil Iceland ehf

Tæknimaður,viðgerðir,þjónusta Elevator/Installer/Technician
Íslandslyftur ehf

Tæknimaður – Fastus Akureyri
Fastus

Slökkviliðs- og/eða sjúkraflutningamaður - framtíðarstarf
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Bankastjóri Blábankans
Blábankinn

Vélvirki / Vélstjóri - þjónustudeild
Fálkinn Ísmar

Ungur frumkvöðull leitar að hægri hönd
Sprotasamsteypa / fjárfestir

Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy

Þjónustudeild Blikksmiðsins hf.
Blikksmiðurinn hf

Flokkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Almenn störf við borframkvæmdir
Jarðboranir

Viðgerðarmaður á Selfossi
Steypustöðin