
Fastus
Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í hágæðavörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Höfuðstöðvarnar eru að Höfðabakka 7 í Reykjavík, þar sem öll helsta starfsemi fer fram undir einu þaki: heildverslun, skrifstofur, sýningarsalur, fageldhús, vöruhús, verkstæði og varahlutalager. Þjónustustaðir eru einnig á Akureyri og Selfossi.
Fyrirtækið veitir heildstæða þjónustu með breiðu vöruframboði, faglegri ráðgjöf, uppsetningum og viðhaldi á innfluttum tækjabúnaði.
Söludeildir eru sérhæfðar:
• Fastus heilsa þjónustar heilbrigðisgeirann með lausnum allt frá rekstrarvörum til flókins tækjabúnaðar
• Fastus lausnir þjónustar veitingastaði, hótel og fyrirtæki með borðbúnað, tæki, húsgögn og innréttingar.
• Tæknideildin, Fastus expert, sér um uppsetningu, viðgerðir, viðhald og gæðaheimsóknir.
• Innri þjónusta styður við allar deildir, m.a. í fjármálum, markaðsmálum, gæðamálum, upplýsingatækni, vörustýringu og mannauði.
Dótturfélög Fastus eru HealthCo og Frystikerfi.

Tæknimaður – Fastus Akureyri
Fastus leitar að metnaðarfullum, sjálfstæðum og lausnamiðuðum tæknimanni í fjölbreytt starf. Um er að ræða verkefni tengd uppsetningu, viðgerðum og þjónustu við tæki sem seld eru hjá Fastus til fjölbreyttra viðskiptavina. Önnur verkefni sem heyra undir starfið er gerð verklýsinga fyrir unnin verk, fagleg ráðgjöf, lausn tæknilegra mála og stuðningur við aðra tæknimenn. Leitað er að einstaklingi með ríka þjónustulund, góða samskiptahæfni og frumkvæði í starfi.
Viðkomandi mun koma til með að starfa í fjölbreyttu og lifandi umhverfi með öflugu teymi. Um er að ræða 100% starf á dagvinnutímabilinu 08:00 - 16:00.
Eingöngu er tekið við umsóknum og fyrirspurnum í gegnum Alfreð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meginábyrgð á tilteknum vörumerkjum og tækjaflokkum.
- Viðhaldi og viðgerðum á stóreldhústækjum.
- Uppsetningar á stóreldhústækjum.
- Að tryggja gæði, öryggi og rétta virkni tækja eftir viðgerðir.
- Faglegri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila.
- Samskiptum við viðskiptavini og ráðgjöf um notkun og viðhald.
- Réttri skráningu og eftirfylgni verkefna.
- Stuðningur og leiðsögn annarra tæknimanna.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem er sjálfstæðir, skipulagðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti.
- Sjálfstæði og lausnarmiðuð hugsun.
- Bílpróf.
- Góð samskiptafærni á íslensku og ensku.
Auglýsing birt20. júlí 2026
Umsóknarfrestur3. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hvannavellir 12, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiRafvirkjunSamviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Ert þú tæknimaðurinn sem aðrir leita til þegar ekkert virkar?
Örugg afritun

Rafvirki
Rafbraut ehf

Vélvirki / Vélstjóri - þjónustudeild
Fálkinn Ísmar

Tæknimaður í þjónustu drykkjartækja
Fastus

Mechanic / Bifvélavirki
Campeasy

Þjónustudeild Blikksmiðsins hf.
Blikksmiðurinn hf

Vélvirki í tæknideild
Coca-Cola á Íslandi

Enercon óskar eftir að ráða rafvirkja.
ENERCON Iceland ehf.

Öryggisfulltrúi / Rafvirki
atNorth

Kaffivélatæknir - viðgerðir, viðhald og þjónusta
Nespresso á Íslandi

Tæknifólk í hleðsluþjónustu ON
Orka náttúrunnar

Sérfræðingur í vöruþróun (e. R&D engineer) - Ísafjörður
Kerecis