
Húnaþing vestra
Kemurðu ekki barninu á leikskóla? - við eigum leikskólapláss.
Ertu í of litlu húsnæði? - hjá okkur færðu meira pláss fyrir minni pening.
Fer of mikill tími í umferðarteppur? - hjá okkur er nóg pláss fyrir bílinn þinni.
Og störfin?
Við eigum þau.
Húnaþing vestra er vel staðsett, miðja vegu milli Akureyrar og Reykjavíkur. Hvammstangi er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins en aðrir þéttbýliskjarnar Laugarbakki og Borðeyri. Heildarfjöldi íbúa er um 1250 og hefur farið vaxandi undanfarin ár. Uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið all nokkur síðustu ár og áform uppi um áframhaldandi húsnæðisuppbyggingu.
Niðurstöður íbúakannana hafa leitt í ljós almenna ánægju íbúa í Húnaþingi vestra með sveitarfélagið sitt og þá þjónustu sem þar er veitt. Til dæmis hafa íbúar verið þeir ánægðustu á landinu með heilbrigðisþjónustu og þjónustu við aldraða, næst ánægðastir á landinu með menningarlíf og tónlistarskóla og þriðju ánægðustu á landinu með vörúrval svo fátt eitt sé nefnt.
Húnaþing vestra er fjölskylduvænt samfélag með hátt þjónustustig og metnaðarfullt leik-, grunn- og tónlistarskólastarf. Gott framboð er af íþrótta-og tómstundastarfi sem er í sífelldri þróun. Sveitarfélagið er útvistarparadís, sundlaugin á Hvammstanga er fyrsta flokks, einnig er þar íþróttahús með þreksal og er félagsstarf afar fjölbreytt. Blómlegt menningarlíf er til staðar, kórar, leikflokkur, dansskóli, alþjóðlegt brúðuleikhús, menningarfélag o.fl.
Hjá sveitarfélaginu starfa um 120 manns.

Forstöðumaður framkvæmda og veitna
Leitum að lausnamiðuðum, metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að leiða starf þjónustumiðstöðvar. Starfið eru liður í heildarendurskoðun á störfum þjónustumiðstöðvar með það að markmiði að viðhalda innviðum sveitarfélagsins og bæta þjónustu við íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg stjórnun þjónustumiðstöðvar og verkstýring s.s. skipulag, úthlutun verkefna og eftirlit.
- Undirbúningur verka og efnisöflun: skipulagning verkefna, innkaup, gerð tímaáætlana og eftirfylgni með þeim.
- Stjórn og þátttaka í verklegum framkvæmdum; tryggja öryggi og fagleg vinnubrögð.
- Umsjón með gerð og eftirfylgni viðhaldsáætlana eigna sveitarfélagsins.
- Eftirlit með framgangi annarra framkvæmda til að tryggja að tímarammar, kostnaðaráætlun og gæði verka standist kröfur og skilmála.
- Samstarf og samskipti við verktaka, forstöðumenn stofnanna, íbúa og birgja.
- Aðstoð við undirbúning útboða og verksamninga; útbúa lýsingar, taka þátt í mati tilboða og gerð samninga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun sem nýtist í starfi og/eða reynsla í byggingariðnaði eða tengdu fagi nauðsynleg.
- Reynsla af verkstjórn og stjórn framkvæmda nauðsynleg.
- Reynsla af samskiptum við verktaka og vinnu að útboðum æskileg.
- Þekking á gæðakerfum og öryggisreglum í byggingariðnaði kostur.
- Sterk leiðtogahæfni og reynsla af daglegri verkefnastýringu.
- Forstöðumaður framkvæmda og veitna skal búa yfir framúrskarandi þjónustulund, samskiptahæfileikum og færni til að eiga samskipti við starfsmenn, iðnaðarmenn og íbúa Húnaþings vestra.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð eru skilyrði.
- Góð almenn kunnátta í íslensku og ensku ásamt tölvufærni.
Auglýsing birt22. júlí 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Búland 3B, 530 Hvammstangi
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri
Garðlist ehf

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Þjónustustjóri Sérverkefna
AÞ-Þrif ehf.

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur

Þjálfari verslana og vörusölu
Nova

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Fjármálastjóri
GoPro

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

VERKEFNASTJÓRI ÓSKAST/PROJECT MANAGER WANTED
Hort fire guard ehf.

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf

Svæðisstjóri
Skólamatur