
Viltu verða aðstoðarkonan mín?
Ég er 26 ára fötluð kon sem leitar að aðstoðarkonu í fullt starf. Um er að ræða starf sem byggist á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, þar sem ég er verkstjórinn en NPA Miðstöðin er umsýsluaðili. Unnið er eftir vaktaplani og laun eru greidd skv. kjarasamningi NPA Miðstöðvar, Reykjavíkurborgar og Eflingar.
Unnið er á einkaheimili þar sem aðstoðarkona aðstoðar mig við athafnir daglegs lífs. Í því felst til dæmis að aðstoða mig við að klæða mig, elda, borða, taka til og þrífa, stússast, fara á milli staða. Aðstoðarkonan fylgir mér hvert sem ég fer þegar hún er á vakt; í skólann, djammið, ferðalög eða bara í búðina. Ég er nefnilega með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og mjög lélegt jafnvægi, svo aðstoðarkona er augun mín og eyru. Það er kostur ef viðkomandi kann táknmál en annars verður það kennt meðfram starfinu.
Gott er ef aðstoðarkona getur byrjað sem fyrst.
Aðstoðarkona þarf að vera á aldrinum 18 - 40 ára. Ekki er gerð krafa um menntun, einungis ökuréttindi. Kostur ef aðstoðarkona er jákvæð, samviskusöm, góð í samskiptum, úrræðagóð og tilbúin að læra nýja hluti.
Ég hlakka til að kynnast þér!











