

Aðstoðarmaður tannlækna
Hlýja tannlæknastofa í Álfheimum óskar eftir tanntækni eða aðstoðarmanni tannlækna. Um er að ræða fullt starf og er vinnutími 08:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og 08:00-14:00 á föstudögum. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Í boði er fjölbreytt starf í jákvæðu og faglegu starfsumhverfi. Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2026.
Samskipti og þjónusta við viðskiptavini
Aðstoða tannlækna fjórhent við stól
Sótthreinsun og þrif á áhöldum og búnaði
Röntgenmyndatökur
Önnur tilfallandi störf á stofunni
Tanntækni- eða heilbrigðismenntun eða reynsla af vinnu á tannlæknastofu er kostur
Góð íslenskukunnátta
Hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu fljótt og vel
Rík þjónustulund
Frumkvæði og faglegur metnaður
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Íslenska










