
Sólhvörf
Leikskólinn Sólhvörf er staðsettur í fallegu umhverfi Elliðavatns, við Álfkonuhvarf 17 í Kópavogi. Deildir leikskólans eru sjö talsins en þar dvelja að jafnaði um 130 börn á aldrinum 1 - 6 ára.
Starfað er eftir hugsmíðahyggju sem byggir á kenningu Jean Piaget um nám og þroska barna. Áhersla er lögð á sjálfræði barnanna en það felur í sér ábyrgð og sjálfsaga og leggjum við áherslu á að kenna börnum frá unga aldri að temja sér hvoru tveggja.
Í Sólhvörfum nýtur hver einstaklingur virðingar og leggur sitt af mörkum til starfsins. Lögð er áhersla á að börn læri að bera virðingu og umhyggju fyrir öðru fólki og þrói með sér samkennd, tillitssemi og vináttu.
Einnig er stefnt að því að barnið byggi upp þekkingu með eigin virkni. Tækið sem barnið notar til náms er leikurinn sem er kjarninn í uppeldi og menntun þess.
Virðing, sjálfræði og virkni eru gildi sem birtast einnig í vinnuskipulagi starfsmanna því mikil áhersla er á samhjálp, samvinnu og dreifða ábyrgð starfsmanna.

Vilt þú vinna í Sólhvörfum ?
Leikskólinn Sólhvörf tók til starfa árið 2008, þar dvelja um 130 börn á sjö deildum. Sólhvörf fylgir áherslum Hugsmíðahyggjunnar í uppeldisstarfi leikskólans með áherslu á sjálfræði barnsins. Einkunarorð skólans eru Virðing, Sjálfræði og Virkni.
Heimasíðan okkar er: https://solhvorf.kopavogur.is/
Við erum að leita eftir einstaklingum sem vilja takast á við margvísleg störf og ögrandi verkefni. Í Sólhvörfum vinnur skemmtilegur og samstarfsfús hópur af starfsfólki með víðtæka reynslu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun.
Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
Sjálfstæð vinnubrögð.
Góð íslenskukunnátta.
Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur að uppeldi og menntun barnanna.
Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Starfið felur í sér almenna kennslu.
Auglýsing birt21. september 2022
Umsóknarfrestur24. október 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Álfkonuhvarf 17, 203 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniKennariKennslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólinn Tjörn óskar eftir leikskólakennara til starfa.
Leikskólinn Tjörn

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Borgarbyggð

Sérfræðingur í málefnum leik- og grunnskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Maríuborg
Leikskólinn Maríuborg

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri vegna afleysingar í 1 ár.
Leikskólinn Tjarnarskógur

Sérkennari/þroskaþjálfi óskast í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Skóla- og frístundaliði - frístundaheimilið Álfakot Engidalsskóla
Hafnarfjarðarbær

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Krílakot: Leikskólakennarar
Dalvíkurbyggð

Barnaskólinn í Hafnarfirði - leikskólakennari/leiðbeinandi með 5 ára börn
Hjallastefnan