Síminn
Síminn
Síminn

Viðskiptastjóri fyrirtækjasölu Símans

Síminn leitar að öflugum viðskiptastjóra fyrirtækjasölu. Viðskiptastjóri þjónustar stærstu viðskiptavini Símans á fyrirtækjamarkaði. Starfið felur í sér að viðhalda og efla núverandi viðskiptasambönd og koma auga á ný viðskiptatækifæri. Viðkomandi þarf að vera í góðum samskiptum við viðskiptavini Símans og veita fyrsta flokks þjónustu sem tryggir framúrskarandi upplifun viðskiptavina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að stýra og efla núverandi viðskiptasambönd
  • Heimsóknir og stöðufundir með viðskiptavinum
  • Samninga- og tilboðsgerð
  • Greiningar á viðskiptavinahópi
  • Önnur verkefni tengd störfum viðskiptastýringar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af viðskiptastýringu eða sölu- og þjónustustörfum á fyrirtækjamarkaði
  • Áhugi og þekking á íslensku atvinnulífi
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Drifkraftur og fagleg vinnubrögð
Fríðindi í starfi
  • Árlegur líkamsræktarstyrkur 
  • Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar 
  • Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða 
  • Gleraugnastyrkur 
  • Afslættir af vörum og þjónustu Símans 
  • Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu 
  • Námsstyrkir
Auglýsing birt5. desember 2023
Umsóknarfrestur17. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar