
Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum sautján aflsstöðvar á starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.

Viðhaldsstjóri á Þjórsársvæði
Við óskum eftir liðsauka í öflugt teymi starfsfólks á Þjórsársvæði þar sem við rekum sjö vatnsaflsstöðvar og tvær vindmyllur.
Viðhaldsstjóri á Þjórsársvæði hefur umsjón með rekstri, eftirliti og viðhaldi aflstöðva og veitumannvirkja á svæðinu. Einnig hefur viðhaldsstjóri umsjón með framkvæmdum innan starfsvæðisins og skipuleggur rof og vinnu.
Starfsstöð er í Búrfelli.
Umsókn skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur umsjón með rekstri, eftirliti og viðhaldi aflstöðva og veitumannvirkja.
- Skipuleggur og forgangsraðar viðhaldsverkefnum á svæðinu.
- Hefur umsjón með framkvæmdum innan starfssvæðisins.
- Hefur eftirlit með því að öryggiskröfum sé framfylgt í daglegum rekstri.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á véla- og eða rafmagnssviði.
- Lipurð í samskiptum og samstarfshæfni.
- Reynsla og þekking á sviði gæða-, viðhalds-, verkefnis-, og rafmagnsöryggisstjórnunar.
- Reynsla á sviði verkstjórnunar og áætlunargerðar er æskileg.
- Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í starfi.
Auglýsing birt2. september 2024
Umsóknarfrestur11. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Búrfellsvirkjun 166701, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiSkipulagVerkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (10)

Hafðu stjórn á straumnum - sérfræðingur stjórnkerfa
Rarik ohf.

Sérfræðingur í iðnstýringum
EFLA hf

Kennarar við Tækniskólann - raftæknigreinar
Tækniskólinn

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Þjónustumiðstöð Kópavogs leitar að öflugum og sjálfstæðum iðnaðarmanni
Þjónustumiðstöð Kópavogs

Tæknimaður - uppsetning, gangsetning og þjónusta
Thor Ice Chilling Solution

Instrumentation, Controls & Power Electronics Role
Hydram Dynamics

Við leitum að öflugum rafvirkja í okkar lið!
Raf-X

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Orkubú Vestfjarða - Ísafjörður - Vélfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf