

Við leitum að dásamlegum leiðbeinanda
Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða leiðbeinanda í 100% stöðu.
Regnboginn er 3ja deilda, einkarekinn leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík.
Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.
Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.
Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni okkar www.regnbogi.is
Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur
Nánari upplýsingar veitir Fanney Guðmundsdóttir, skólastjóri, í netfanginu [email protected]
- Menntun og/eða reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og stundvísi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð












