Góði hirðirinn
Góði hirðirinn
Góði hirðirinn

Verslunarstjóri Góða hirðisins

Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi til að stýra verslun Góða hirðisins og stuðla að aukinni endurnotkun. Verslunarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri verslunarinnar, tryggir að hún sé vel skipulögð, snyrtileg og örugg ásamt því að sjá um að verðlagning og frágangur muna sé í góðu horfi. Verslunarstjóri tryggir að starfsmenn fái viðeigandi þjálfun og stuðlar að góðri upplýsingamiðlun.

Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf í kraftmiklu og lifandi umhverfi. Sendu inn umsókn og vertu hluti af frábæru teymi Góða hirðisins!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri, skipulagi og mönnun
  • Innkaup á rekstrarvörum 
  • Umsjón með kassakerfi og frágangur uppgjörs
  • Samskipti við utanaðkomandi aðila 
  • Viðhalda góðu þjónustustigi verslunar
  • Tryggja að öryggismálum sé fylgt eftir og vinna að stöðugum umbótum
  • Tryggja vinnusemi, jákvæðni og hvetja starfsmenn áfram
  • Vera leiðbeinandi og sýna frumkvæði við endurnýtingu og flokkun endurvinnsluefna
  • Stuðla að góðu samstarfi og samskiptum við önnur teymi Góða hirðisins
  • Sinna tilfallandi verkefnum sem tilheyra starfsstöðinni 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynslu af verslunar og/eða þjónustustörfum
  • Reynsla af afgreiðslukerfum er kostur
  • Hafa ríka öryggisvitund og sýna hana í verki 
  • Eiga auðvelt með að tileinka sér nýjungar og sýna sjálfstæði
  • Hafa mikla hæfni í mannlegum samskiptum, samstarfi og góð þjónustulund
  • Sjálfstæði, frumkvæði, metnaður og öguð vinnubrögð
  • Hafa góða tölvufærni, þ.m.t. á Office, SharePoint og BusinessCentral
  • Hafa áhuga á hringrásarhagkerfinu og endurnýtingu
  • Líkamlegur styrkur er skilyrði 
  • Hafa gott vald á íslensku og ensku  
Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business CentralPathCreated with Sketch.SharePointPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar