
Bako Verslunartækni
BAKO VERSLUNARTÆKNI býður fjölbreyttar lausnir fyrir hótel, veitingastaði, bari og bakarí svo eitthvað sé nefnt. Eins bjóðum við allar lausnir í verslanir og stórmarkaði, hvort heldur er kælikerfi, hillukerfi, öryggishlið eða annað sem þarf til að láta verslunarreksturinn virka sem best.
Fyrirtækið á sér langa sögu samruna fjölmargra fyrirtækja sem hafa verið sameinuð síðustu áratugi. Meðal félaganna eru Verslunartækni, BakoÍsberg, Geiri, Stóreldhús, Straumur, Bakaratækni og fleiri.
Allt hefur þetta miðað að því að styrkja stoðir, bæta vöruval og þjónustu og ná til víðari hóps viðskiptavina.
Verslunarstjóri í sýningarsal
Langar þig að vinna í lifandi og skemmtilegu umhverfi sem þjónustar veitingabransann og verslanir á Íslandi?
BAKO VERSLUNARTÆKNI leitar að nýjum starfsmanni í afgreiðslu og umsjón með sýningarsal fyrirtækisins á Draghálsi 22 í Reykjavík. Við leitum að nýjum samstarfsfélaga sem hefur góða þekkingu á öllu sem snýr að veitingageiranum, hótelum og verslunum.
Starfið felst í móttöku og afgreiðslu viðskiptavina sem og umsjón og ábyrgð á uppstillingum og áfyllingu í stærsta sýningarsal á Íslandi með veitingavörur. Viðkomandi starfsmaður tilheyrir hópi öflugra sérfræðinga í verslana- og veitingalausnum, bæði fyrir fagfólk og ástríðukokka. Starfið er til dæmis upplagt fyrir kokk eða þjón sem gæti hugsað sér að vinna hefðbundna dagvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afgreiðsla, móttaka og ráðgjöf til viðskiptavina.
- Samskipti við söluaðila og viðskiptavini.
- Uppstillingar og áfyllingar.
- Ábyrgð á vörum í sal ásamt vöruvali.
- Umsjón með vefpöntunum.
- Þátttaka í að þróa og uppfæra heimasíðu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Rík þjónustulund og vilji til að veita framúrskarandi þjónustu.
- Reynsla af þjónustu og sölu.
- Reynsla og þekking af veitingageiranum er kostur.
- Góð framkoma og samskiptahæfni.
- Jákvæðni, frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
Auglýsing birt11. júní 2025
Umsóknarfrestur22. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Dragháls 22
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Barþjónn í hlutastarf / Bartender for part time
Tres Locos

Verslunarstjóri Icewear
ICEWEAR

Sölustarf í fiskbúð & þrif
Fylgifiskar ehf

Umsjónarmaður vefverslunar NTC
NTC ehf

Waiter/Bartender
Gistihúsið - Lake Hotel Egilsstaðir

Veitingastjóri - Restaurant Manager
EIRIKSSON BRASSERIE

Join Our Team at Point!
SSP Iceland

Sölumaður í verslun
Rafvörumarkaðurinn

Akureyri: Starfsmaður í Air og Ellingsen
S4S - Ellingsen

Verslunarstjóri Góða hirðisins
Góði hirðirinn

Þjónn // vaktstjóri óskast
Matur og Drykkur

Hlutastarf í ELKO Lindum
ELKO