
Verkstjóri veitna
Vegna mikilla umsvifa og framkvæmda óskar Bláskógaveita eftir að ráða verkstjóra veitna.
Um er að ræða100% starf, en auk þess þarf starfsmaður að vera tilbúinn til að ganga bakvaktir samkvæmt nánara skipulagi og sinna útköllum, komi upp bilanir eða rekstrartruflanir. Vegna þess er búsetta á dreifisvæði veitunnar eða í næsta nágrenni æskileg.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Verkstjóri veitna sinnir eftirfarandi verkefnum í samráði við veitustjóra:
· daglegum rekstri, umsjón og viðhaldi veitukerfa
· nýframkvæmdum við vatnsöflun, veitukerfi og mannvirki þeim tengd
· heimlögnum og tengingum
· verkstjórn og stýringu verktaka
· vinnu við áætlanagerð
· ber ábyrgð á öryggisþáttum
· er staðgengill veitustjóra
Menntunar- og hæfniskröfur:
· menntun sem nýtist í starfi, t.d. í málmiðngreinum
· reynsla og þekking á sviði veitna og framkvæmda er æskileg
· færni í mannlegum samskiptum
· færni til að stjórna og leiðbeina
· frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
· góð almenn tölvukunnátta
· ökuréttindi
· suðu- og vinnuvélaréttindi eru kostur
Íslenska










