
Sveitarfélagið Vogar
Í Sveitarfélaginu Vogum búa um 2.000 manns og er það umkringt fallegri náttúru Reykjanessins auk nálægðar við sjó með skemmtilegum gönguleiðum og fuglalífi. Sveitarfélagið er vel staðsett í nágrenni við þjónustu höfuðborgarsvæðisins og alþjóðaflugvallar en býður upp á kyrrlátt, vinalegt og fjölskylduvænt umhverfi.

Verkstjóri í vinnuskóla sumar 2026 - Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar auglýsir eftir verkstjórum í vinnuskóla fyrir sumarið 2026
Vinnuskólinn óskar eftir metnaðarfullum og ábyrgum einstaklingum til að gegna stöðu verkstjóra í sumar. Starfið er tímabundið og varir í um 4 mánuði á tímabilinu maí til ágúst loka.
Um er að ræða skemmtilegt starf með ungu fólki. Megin verkefni verkstjóra er að skipuleggja verkefni vinnuskólans og halda utan um alla vinnu á opnum svæðum, tímaskráningar og annað tengd vinnuskólanum. Verkstjóri vinnuskólans eru næsti yfirmaður flokkstjóra sem leiða unglingahópa í fjölbreyttum verkefnum sem tengjast umhirðu bæjarins og tiltekt. Næsti yfirmaður verkstjóra er sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.
Æskilegt er að umsækjendur séu 21 árs eða eldri.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning vinnu
- Almennt utanumhald og stuðningur við störf flokkstjóra Vinnuskólans
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Reynsla af starfi með börnum og unglingum
- Þekking á verkstjórn og garðyrkjustörfum kostur
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Almenn tölvukunnátta
- Bílpróf
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Iðndalur 4, 190 Vogar
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (8)

Verkstjóri - jarðvinna og veitulagnir
Stéttafélagið ehf.

Hópstjóri á Verkstæði
Toyota

VERKEFNASTJÓRI ÓSKAST/PROJECT MANAGER WANTED
Hort fire guard ehf.

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?
Slippurinn Akureyri ehf

Svæðisstjóri - tímabundið starf
Skólamatur

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Móttaka á verkstæði
Aflvélar ehf.

Garðyrkjufræðingur
Garðlist ehf