
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Flokkstjóri Vinnuskóla Akraneskaupstaðar
Auglýst er eftir flokkstjórum í Vinnuskólann á Akranesi, fyrir sumarið 2026.
Flokkstjórar hafa umsjón með hópum unglinga, 14-17 ára, við ýmis garðyrkjustörf, fræðslu og fleiri verkefnum Vinnuskólans.
Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi. Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu byggðalagsins.
Markmið vinnuskólans er að gefa unglingum kost á sumarstörfum í umhverfi sem einkennist af fræðslu, kennslu og tómstundum. Lögð er áhersla á samskiptareglur, vinnusemi og virðingu gagnvart vinnu, samstarfsfólki og bæjarbúum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna með unglingum og leiðbeina við almenn garðyrkjustörf í bæjarlandinu.
- Skipuleggja verkaskiptingu og framkvæmd verkefna innan hóps.
- Efla liðsheild og vinnuvirðingu meðal unglinga vinnuskólans.
- Annast ýmis skapandi verkefni og fræðslu á vegum vinnuskólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi þarf að vera 20 ára eða eldri.
- Reynsla af störfum með unglingum er kostur.
- Gott er að hafa mikla samskiptahæfni og skipulagsfærni.
- Umsækjandi þarf að vera góð fyrirmynd og samviskusamur.
- Áhugi á umhverfismálum þarf að vera til staðar.
- Einnig þarf umsækjandi að hafa hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar.
Auglýsing birt26. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Ægisbraut 13, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Verkstjóri byggingaframkvæmda
Verkgarðar

Sumarstörf hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Bifvélavirki eða maður vanur viðgerðum á stórum bifreiðum.
Teitur

Verkstjóri óskast – fjölbreytt verkefni
Verkás Brunnar

Laus störf flokkstjóra í vinnuskóla
Sveitarfélagið Vogar

Sumarstarf flokkstjóra hjá ÍBR
Íþróttabandalag Reykjavíkur

Verkstjóri í Búnaðardeild
ÍAV

Verkstjóri garðyrkjufólks
Umhverfis- og skipulagssvið

Fjölbreytt sumarstörf í Múlaþingi fyrir 18 ára og eldri
Fjölskyldusvið

Verkstjóri í vinnuskóla sumar 2026 - Sveitarfélagið Vogar
Sveitarfélagið Vogar

Verkstjóri og flokkstjórar vinnuskóla
Rangárþing ytra

Blómaval í Skútuvogi -Garðyrkjufræðingur
Blómaval