Bláskógaveita
Bláskógaveita

Starfsmaður veitna

Vegna mikilla umsvifa og framkvæmda óskar Bláskógaveita að ráða starfsmann veitna. Um 100% starf er að ræða, en auk þess þarf starfsmaður að vera tilbúinn til að ganga bakvaktir samkvæmt nánara skipulagi og sinna útköllum, komi upp bilanir eða rekstrartruflanir. Vegna þess er búsetta á dreifisvæði veitunnar eða í næsta nágrenni æskileg.

Bláskógaveita tilheyrir framkvæmda- og veitusviði Bláskógabyggðar og er hluti af mikilvægum innviðum í sveitarfélaginu. Dreifisvæði veitunnar tekur til Laugaráss, Laugarvatns, Reykholts og dreifbýlis í talsverðum hluta Bláskógabyggðar. Íbúar í Bláskógabyggð eru um 1.550, en auk þess eru um 2.000 sumarhús í sveitarfélaginu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsmaður veitna sinnir, undir stjórn veitustjóra eða verkstjóra,:

·         verkefnum sem tengjast daglegum rekstri, umsjón og viðhaldi veitukerfa

·         vinnu við nýframkvæmdir, heimlagnir og tengingar

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. í málmiðngreinum

·         reynsla og þekking á sviði veitna eða framkvæmda er kostur

·         færni í mannlegum samskiptum

·         frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð

·         ökuréttindi

·         suðu- og vinnuvélaréttindi eru kostur

Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur26. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Laugarás 167381, 801 Selfoss
Reykholt hitaveitulóð , 801 Selfoss
Laugarvatn 167638, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn ökuréttindiPathCreated with Sketch.BlikksmíðiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Meistarapróf í iðngreinPathCreated with Sketch.PípulagnirPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Vinnuvélaréttindi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar