
Starfsfólk við malbikun
Malbikstöðin óskar eftir að ráða starfsfólk í 100% starf við malbikun. Um fjölbreytt starf er að ræða þar sem starfsfólk verður hluti af samstilltu teymi sem sinnir hinum ýmsu verkefnum, allt frá framkvæmdum bílastæða, stíga, yfir í stærri veg- og götuframkvæmdir. Malbikstöðin býður upp á fyrsta flokks tækjakost og þjálfun sem nauðsynleg er til að sinna starfinu. Malbikari sinnir handavinnu og almennum yfirborðsfrágangi á verkstað í góðri samvinnu við sitt teymi. (English below).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Malbikun í samstarfi við og undir leiðsögn verkstjóra
- Handavinna og yfirborðsfrágangur
- Ábyrgð á góðri umgengni og frágangi á verkstað
- Fylgja öllum öryggiskröfum og reglum. Starfið telst sérstaklega áhættusamt vegna mikillar nálægðar við umferð og vinnuvélar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Almenn ökuréttindi
- Vinnuvélaréttindi er kostur
- Reynsla af vinnu við malbikun eða hellulögn er kostur
- Mikil öryggisvitund
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna í teymi
- Þjónustulund og jákvætt viðmót
- Mjög góð líkamleg færni
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Vinnufatnaður
- Hádegismatur
Um Malbikstöðina
Malbikstöðin var stofnuð árið 2004. Félagið hefur vaxið og dafnað vel frá stofnun þess en á árinu 2020 var reist ný framleiðslustöð fyrir malbik með áherslu á umhverfisvæna framleiðslu og endurvinnslu malbiks. Hjá fyrirtækinu starfa í dag um 60 manns við hin ýmsu störf. Félagið rekur tvö verkstæði, rannsóknarstofu, malbikshópa, fræshópa, malbiksframleiðslu, gæða- og umhverfiseftirlit, flotastýringu og skrifstofu. Nánari upplýsingar um Malbikstöðina má sjá á heimasíðu félagsins www.malbikstodin.is
Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) og Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.
-------------------------------------------------------------------------------------------------
Employees for Asphalt Paving
Malbikstöðin is seeking to hire motivated individuals for a full-time (100%) position in asphalt paving. This is a varied and hands-on role whithin a well coordinated team working on diverse projects, ranging from parking lots and pedestrian paths to larger road and street construction. Malbikstöðin provides first class equipment and thorough training to ensure employees are well prepared for the job. Asphalt paving staff carry out manual work and surface finishing on site in close cooperation with their team.
Main tasks and responsibilities
- Asphalt paving in collaboration with and under the supervision of a site manager
- Manual work and surface finishing
- Responsibility for maintaining good order and proper work site cleanup
- Comply with all safety requirements and regulations. The role is considered particularly high‑risk due to close proximity to traffic and heavy machinery
Qualifications and skills
- Valid general driver‘s license
- Machinery operation license is an advantage
- Experience in asphalt paving or paving stone installation is an advantage
- Strong safety awareness
- Good interpersonal and communication skills
- Ability to work effectively as part of a team
- Service minded attitude and positive demeanor
- Very good physical fitness
Employee benefits
- Fitness allowance
- Work clothing provided
- Lunch provided
For further information, please contact Lovísa Kristín Þórðardóttir ([email protected]) and Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) at tel. 511‑1225.
Íslenska
Enska










