
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Rannsókn og hjólaskófla
Steypustöðin í Helguvík leitar að sterkum og nákvæmum einstaklingi í fullu starfi. Ef þú hefur reynslu af hjólaskófluakstri og vinnur vel í hópi, þá gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið er fjölbreytt og skiptist milli þess að taka steypusýni til greiningar og vinna á hjólaskóflu. Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í okkar góða teymi. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að takast á við nýjar og fjölbreyttar áskoranir í góðum hópi.
Við hvetjum öll kyn og þjóðerni til að sækja um. Um framtíðarstarf er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sýnataka á steypu í stöð og á verkstað
- Stýra hjólaskóflu og mata steypustöð
- Aðstoð við viðhald á framleiðslutækjum
- Önnur tilfallandi störf í samstarfi við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stóru vinnuvélaréttindin, þ.e. hjólaskóflu, beltagröfu og jarðýtu
- Meirapróf er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg en ekki nauðsyn
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Samviskusemi
- Íslensku- og/eða enskukunnátta æskileg
- Metnaður og áhugi fyrir efnisvinnslu
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Námskeið og fræðsla
- Hádegismatur
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Fjölbreytt verkefni
Auglýsing birt24. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Berghólabraut 9, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiStundvísiVinnuvélaréttindi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Þakpappalagnir
Þakverk apj ehf

Starfsmaður í framleiðslustöð
Malbikstöðin

Sumarstörf hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Starfsmenn í framleiðslu og uppsetningar
Signa ehf

Smiður / starfsmaður í byggingarvinnu
Verkás Brunnar

Kjötskurðarmaður / Meat cutter hjá SS á Hvolsvelli
SS - Sláturfélag Suðurlands

Starfsfólk við malbikun
Malbikstöðin

Byggingarstarfsmaður í framleiðslu á forsteyptum einingum / Construction worker
Einingaverksmiðjan

Reykjavík: Bifvélavirki / vélvirki óskast - Car mechanic
Íslenska gámafélagið ehf.

Sumarstörf hjá Landi og skógi Gunnarsholti
Land og skógur

Sumarstarf flokkstjóra hjá ÍBR
Íþróttabandalag Reykjavíkur

Fullt starf í viðhaldsdeild í laxavinnslu Arnarlax
Arnarlax ehf