
Embla Medical | Össur
Össur var stofnað á Íslandi árið 1971 og er alþjóðlegt heilbrigðistæknifyrirtæki sem hannar og framleiðir stoðtæki, spelkur og stuðningsvörur. Markmið okkar er að bæta hreyfanleika fólks og gera því kleift að lifa lífinu án takmarkana. Embla Medical var stofnað árið 2024 til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins í heilbrigðistækni. Vörumerkin Össur, College Park, Fior & Gentz og ForMotion tilheyra öll Emblu Medical.
Við erum leiðandi afl á heimsvísu með um 4.500 starfsmenn í yfir 40 löndum. Höfuðstöðvarnar eru á Íslandi en starfsstöðvar víða um heim sinna vaxandi markaði. Félagið er skráð á hlutabréfamarkað í Danmörku.
Mannauðurinn er kjarninn í okkar árangri. Sem hátæknifyrirtæki leggjum við ríka áherslu á að laða að okkur hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem leggur sig fram og sýnir frumkvæði.

Verkstjóri í CCP og samsetningu
Við leitum að metnaðarfullum verkstjóra til liðs við öfluga liðsheild tveggja framleiðsludeilda fyrirtækisins á Íslandi, koltrefjadeild og samsetningardeild. Verkstjóri stýrir daglegum rekstri þessara tveggja deilda í samvinnu við aðra stjórnendur og sérfræðinga. Starfsfólk framleiðsluteymisins er um 45 talsins. Þau sinna fjölbreyttum störfum við framleiðslu stoðtækja fyrir viðskiptavini okkar um heim allan með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Mjög góð færni í mannlegum samskiptum
Þekking á straumlínustjórnun (e. Lean)
Brennandi áhugi á framleiðslu
Mjög góð íslensku- og ensku kunnátta
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Reynsla af stjórnun
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með daglegum rekstri og skipulagi verka
Ábyrgð á mönnun, þjálfun og eftirfylgni mannauðsmála
Fylgja eftir framleiðslumarkmiðum deildarinnar
Ábyrgð á öryggismálum á starfsstöðvum deildarinnar
Þátttaka við þróun og innleiðingu framleiðsluferla
Fríðindi í starfi
Samgöngustyrkur
Líkamsræktarstyrkur
Mötuneyti
Auglýsing birt6. september 2023
Umsóknarfrestur20. september 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiLeanSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Front Office Supervisor
The Reykjavik EDITION

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Framleiðslustarf í Silicone - Kvöldvaktir
Embla Medical | Össur

Samningastjóri
Veitur

Samlokumeistari Subway
Subway

Verkefnastjóri hönnunar
FSRE

Þjónar 100% starf - La Trattoria, Hafnartorg / Waiters full-time
La Trattoria

Lyfjaskömmtun Apótekarans - framtíðarstarf
Apótekarinn

Umsjón með útungunarstöð á Hellu
Holta

Kitchen Assistant – Central Kitchen (Mon–Fri, Morning Shift)
Tokyo Veitingar Central Kitchen

Framleiðslustarf - Production Worker
Icelandic Glacial

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.