

R&D Stoðtækjafræðingur | Össur
Össur leitar að stoðtækjafræðingi (Certified Prosthetist/Orthotist, CPO) til að ganga til liðs við Þróundardeild Össurar– Biomechanical Testing teymið. Sem hluti af teyminu, ber stoðtækjafræðingur R&D ábyrgð á að skipuleggja og veita þá stoðtækjaþjónustu sem nauðsynleg er fyrir klínískar prófanir sem framkvæmdar eru í Þróunardeild Össurar, auk annarra verkefna sem viðkoma þeim prófunum.
Þetta er tækifæri til að starfa í þverfaglegu og alþjóðlegu umhverfi og taka virkan þáttt í þróun og prófun vara sem bæta hreifanleika fólks um allan heim.
Teymið er staðsett í Reykjavík.
-
Skipuleggur og veitir þá stoðtækjaþjónustu sem nauðsynleg er til framkvæmdar klínískra prófana á starfsstöð fyrirtækisins.
-
Starfar náið með Biomechanical Testing teyminu til að tryggja bæði samræmi í markmiðum og framkvæmd klínískra rannsókna og verkefna, sem og skilvirka miðlun upplýsinga og niðurstaðna til viðeigandi R&D teyma og aðila.
-
Veitir innsýn og faglega ráðgjöf sem stoðtækjafræðingur til vöruþróunarverkefna og verkfræðiteyma.
-
Semur og viðheldur skjölum í samræmi við innri kröfur og reglugerðir.
-
Vinnur með öðrum stoðtækjafræðingum innan bæði Össur og Emblu Medica, þegar við á, við skilgreiningu vörukrafna og framkvæmd klínískra prófana utan starfsstöðvar.
-
Löggildur Stoðtækjafræðingur - B.Sc. gráða / viðurkennt nám í stoðtækjafræði
-
Reynsla í gerð, viðhaldi og eftirliti stoðtækja.
-
Góð greiningar- og rökhugsunarhæfni.
-
Góð tölvukunnátta.
-
Góð skipulagshæfni
-
Góð hæfni í ensku í rituðu og töluðu máli
- Líkamsræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir
- Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat
- Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf
- Árlegur sjálfboðaliðadagur
- Sveigjanlegur vinnutími
- Starfsþróun
- Öflugt félagslíf
Íslenska
Enska