
Verkstjóri
Okkur vantar góðan liðsauka. Umsækjendur þurfa að vera með reynslu af sambærilegum störfum, liprir í mannlegum samskiptum og með ríka þjónustulund.
Alverk er metnaðarfullt og framsækið stjórnunarfyrirtæki í mannvirkjagerð með megináherslu á framkvæmdir og ráðgjöf. Fyrirtækið starfar að mestu sem al- eða aðalverktaki.
Alverk vinnur í dag að mörgum krefjandi og spennandi verkefnum, bæði á byggingastigi og í þróun. M.a. svefnskála/gistihóteli fyrir Landhelgisgæsluna á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar, 52 íbúða verkefni í Úlfarsárdal og stækkun hátækniseturs fyrir Aztiq/Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík. Erum að hefja byggingu á 115 íbúðum ásamt bílageymslu á Kirkjusandi í Reykjavík fyrir 105 Miðborg/Íslandssjóði. Svo erum við með á þróunarstigi 100 íbúðir við Arnarbakka í Reykjavík.
Við horfum bjartsýn til næstu ára, verkefnastaða félagsins er góð, mörg spennandi verkefni í vinnslu og önnur í undirbúningi.











