Flóahreppur
Flóahreppur
Flóahreppur

Verkstjórar í vinnuskóla

Leitað er eftir öflugum einstaklingum sem eiga auðvelt með samskipti og hafa gaman að því að starfa með unglingum og ungmennum.

Verkstjórar undirbúa, skipuleggja og stýra sumarvinnu unglinga í sveitarfélaginu Flóahreppi og vinna með umsjónarmanni fasteigna og húsvörðum á fasteinasviði sveitarfélagsins.

Vinnuskólinn sinnir umhirðu, ræktun, viðhaldi og fleiri verkefnum, oft í tengslum við félagsheimili, skólalóð, íþrótta- og útivistarsvæði. Verkefnin eru nokkuð fjölbreytt svo sem að gróðursetja, slá og raka, hreinsa beð, grisja skóg, mála, plokka, sópa, þrífa, smíða og leggja hellur, grasþökur eða göngustíga.

Vinnuskólinn starfar í 7 vikur frá 5. júní – 21. júlí en verkstjórar geta unnið yfir lengra tímabili skv. samkomulagi.

Einnig er möguleiki á afleysingum um kvöld og helgar í félagsheimilum ef áhugi er á meiri vinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • úthluta verkefnum og leiðbeina um vinnubrögð
  • skipulagning uppákoma í tengslum við vinnuna
  • gæta að og ganga frá áhöldum og vélum sem notuð eru
  • samskipti við forráðamenn
  • utanumhald og skil á vinnuskýrslum
  • samskipti við aðra starfsmenn á fasteignasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkstjóri í vinnuskóla þarf að vera fær í samskiptum ásamt því að geta verið unglingum góð fyrirmynd.
  • Vinnusemi, stundvísi og sjálfstæði í starfi eru jafnframt mikilvægir kostir.
  • Gerð er krafa um að verkstjóri hafi náð 18 ára aldri.
  • Gilt ökuskírteini.
  • Ekki er gerð formleg krafa um menntun til að gegna starfi verkstjóra í vinnuskóla en reynsla af starfi með unglingum er æskileg.
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími þann tíma sem vinnuskóli unglinga er ekki starfandi.
  • Möguleiki á aukavinnu um helgar.
  • Sveitarfélagið getur boðið starfsmanni upp á námskeið í skyndihjálp og vinnuvernd.
Auglýsing stofnuð15. apríl 2024
Umsóknarfrestur10. maí 2024
Staðsetning
Þjórsárver 166407, 801 Selfoss
Félagslundur 165473, 801 Selfoss
Þingborg 166286, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar