
Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, Kadeco, er félag í eigu ríkisins sem hefur það meginmarkmið að leiða samstarf íslenska ríkisins, Isavia, Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um skipulag, þróun, hagnýtingu og markaðssetningu lands við Keflavíkurflugvöll.
Félagið var stofnað árið 2006 með það markmið að hafa umsjón með og selja þær eignir sem Bandaríkin afhentu Íslandi við brottför varnarliðsins. Árið 2019 seldust síðustu húseignirnar sem félagið hafði umsjón með. Þar með hófst nýr kafli í sögu félagsins en sumarið 2019 undirrituðu íslenska ríkið, Isavia, Reykjanesbær og Suðurnesjabær viljayfirlýsingu um að vinna saman að heildstæðri stefnu og framtíðarsýn fyrir landsvæðin í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Kjarnaverkefni Kadeco er nú að leiða þetta samstarf um að auka virði svæðisins með skipulagningu nýs þróunarsvæðis við flugvöllinn. Árið 2021 stóð Kadeco fyrir alþjóðlegri samkeppni um þróunaráætlun fyrir svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll til ársins 2050. Mikill áhugi var á samkeppnisútboðinu og alls bárust umsóknir frá 25 fjölþjóðlegum teymum, en það var alþjóðlega hönnunar- og skipulagsstofan KCAP sem varð hlutskörpust. Kadeco vinnur nú áfram að gerð þróunaráætlunar í samstarfi við KCAP.
Verkefnastjóri
Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, leitar að verkefnastjóra til að vinna að framtíðartækifærum og þróun svæðisins ásamt því að vera hluti af uppbyggingu Kadeco teymisins.
Starfið býður upp á tækifæri til að vera hluti af umfangsmiklu alþjóðaverkefni sem miðar að því að auka virði flugvallarsvæðisins með skipulagsgerð. Vinna með og læra af alþjóðlegu teymi sérfræðinga á sviði borgarþróunar og skipulags, arkitektúrs og landslagshönnunar, samgangna, sjálfbærni, staðarhönnunar og -mörkunar, efnahags- og fasteignaþróunar.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. verkefnastjórnun, arkitektúr, skipulagsfræði
Þekking og reynsla af verkefnastjórnun stórra verkefna
Reynsla úr krefjandi starfsumhverfi og samskiptum við hagsmunaaðila
Lausnamiðuð hugsun og aðlögunarhæfni
Nákvæmni í vinnubrögðum
Jákvæðni, drífandi og sterk geta til að starfa í teymisvinnu
Geta til þess að vinna í krefjandi og breytilegu umhverfi
Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð og umsjón með verkefnum s.s. skilgreining, skipulagning og eftirfylgni
Náin samvinna við framkvæmdastjóra og ráðgjafa
Dagleg samskipti við viðskiptavini og hagsmunaaðila
Teymisstjórnun s.s. stýring teymisfunda
Tryggja að útkoma verkefna sé í samræmi við sýn félagsins og markmið
Auglýsing birt16. maí 2022
Umsóknarfrestur29. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skógarbraut 946, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (5)




