

Verkefnastjóri kennslukerfa
Kennsluþróun HR leitar að framsýnum og lausnamiðuðum samstarfsfélaga til að gegna fjölbreyttu og krefjandi hlutverki við stuðning, þróun og þjálfun í notkun á stafrænum kennsluverkfærum með áherslu á kennslukerfið Canvas. Starfið hentar einstaklingi sem hefur áhuga á að efla gæði náms og kennslu í háskólaumhverfi, ásamt því að styðja og þjálfa kennara í notkun á kennslukerfum skólans. Um er að ræða 50% starfshlutfall.
Helstu verkefni
- Almenn þjónusta við notendur kennslukerfisins Canvas
- Ráðgjöf og stuðningur við kennara háskólans í Canvas og öðrum kennslukerfum
- Aðkoma að skipulagi, framkvæmd vinnustofa/ þjálfunar og fræðsluviðburðum þegar kemur að kennslukerfum háskólans
- Gerð og þróun leiðbeininga og stuðningsefnis fyrir kennara í notkun kennslukerfa háskólans
- Þátttaka í innleiðingu og þróun nýrra stafrænna kennsluverkfæra
- Þátttaka í umbótaverkefnum á sviði kennsluþróunar
Hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Reynsla af notkun Canvas eða annarra kennslukerfa er mikill kostur
- Mjög góð færni í upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér ný stafræn verkfæri
- Mjög góð færni í að miðla þekkingu og veita þjálfun á skýran og hvetjandi hátt
- Frumkvæði í starfi ásamt skipulagshæfni og faglegum vinnubrögðum
- Teymishugsun, lipurð, mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
- Reynsla af kennsluráðgjöf, fræðslu eða sambærilegu starfi er kostur
- Þekking og reynsla af háskólastarfi er kostur
- Kunnátta í forritun er kostur
- Þekking eða reynsla af notkun gervigreindar í námi og kennslu er kostur
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti
Umsóknum um starfið þarf að fylgja ferilskrá og kynningabréf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrefna Pálsdóttir ([email protected]), forstöðukona Kennsluþróunar og Mannauðsdeild HR, ([email protected]).
Umsóknarfrestur til og með 01.03.2026. Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnað.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf ekki síðar en í maí.
Íslenska
Enska
















