
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Verkefnastjóri í Þjónustumiðstöð Kópavogs
Kópavogsbær óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf verkefnastjóra á skrifstofu Þjónustumiðstöðvar Kópavogs.
Starfið felur í sér skráningu verkbókhalds og forvinnslu launa, reikningagerð, almenna símsvörun og meðferð og afgreiðslu erinda vegna stöðubrotagjalda Bílastæðasjóðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meðferð og afgreiðsla erinda vegna stöðubrotagjalda
- Öll almenn tímaskráning launa til launadeildar
- Verkbókhald fært, yfirfarið og bókað
- Reikningagerð fyrir Þjónustumiðstöð og Vatnsveitu ásamt samskiptum við innheimtudeild
- Sér um ráðningu sumarvinnustarfsfólks
- Viðhald og gerð ýmissa handbóka
- Öll almenn símsvörun fyrir Þjónustumiðstöð
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf er nýtist í starfi
- Haldgóð þekking á Navision skilyrði
- Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
- Góð þjónustulund og lausnarmiðuð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Mjög gott vald á ritaðri og talaðri íslensku skilyrði
- Lögð er áhersla á góð mannleg samskipti, vandvirkni, frumkvæði og ríka ábyrgðartilfinningu
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttafélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Ingvar Jónasson hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs í síma 441-9000.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Auglýsing birt19. júlí 2021
Umsóknarfrestur2. ágúst 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Fannborg 2, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðamaður á dýraspítala
Dýralæknar Sandhólaferju ehf.

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála
Reykjanesbær

Velferðarsvið – Teymisstjóri í barnaverndarþjónustu
Reykjanesbær

Skrifstofustjóri
Vopnafjarðarhreppur

Starfsmaður í afgreiðslu
Vélanaust

Starfsmaður í verkstæðismóttöku
Vélrás

Bókari og skrifstofufulltrúi
Akraborg ehf.

Skrifstofustjóri - Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi í okkar lið!
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar ehf.

Sérfræðingur í þjónustu og sjálfvirknivæðingu
Creditinfo

Starfsmaður í afgreiðslu.
Aðalskoðun hf.

Bókari
Eðalfang ehf.

MÓTTÖKURITARI
Tannréttingastofa Gísla E Árnasonar