Borgarbyggð
Borgarbyggð
Borgarbyggð

Verkefnastjóri í byggingarmálum

Verkefnastjóri óskast við byggingarmál í skipulags-og byggingardeild Borgarbyggðar.

Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.

Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.

Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskornum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.

Erum við að leita að þér?

Menntunar- og hæfniskröfur
Gerð er krafa um háskólamenntun í verk-tækni eða byggingarfræði.
Góð almenn tölvukunnátta, þekking á OneSystem er kostur.
Þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
Færni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð.
Þekking og hæfni í íslensku, bæði töluðu sem rituðu máli.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirferð séruppdrátta, þ.e. burðarþols-, lagna,- raflagna- og deiliteikningar.
Yfirferð eignaskiptasamninga og afgreiðsla til Þjóðskrá Íslands.
Skráning byggingarstjóra, hönnuða og iðnmeistara
Aðstoða byggingarstjóra við uppsetningu og skráningu á úttektarappi byggingarstjóra.
Aðstoðar við viðhald og varðveislu uppdrátta og skjala vegna byggingamála í samræmi við ákvæði laga og reglugerða þar um.
Uppsetning á vottorðum, þ.e. byggingarleyfis-, öryggis- og lokaúttektarvottorð.
Úttektir, þ.e. fokheldis-, öryggis-, loka- og stöðuúttektir.
Eftirfylgni byggingarleyfisumsóknar vegna verkstöðu og byggingarstigs.
Skráning mannvirkja í kerfi Þjóðskrár Íslands og uppfærsla á byggingarstigi o.fl.
Veitir upplýsingagjöf og ráðgjöf um skipulags- og byggingarmál í Borgarbyggð.
Önnur verkefni sem viðkomandi er falið af deildarstjóra skipulags- og byggingarmála.
Auglýsing birt24. maí 2022
Umsóknarfrestur10. júní 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgarbraut 14, 310 Borgarnes
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar