Samgöngustofa
Samgöngustofa
Samgöngustofa

Verkefnastjóri hugbúnaðarþróunar

Samgöngustofa leitar að öflugum einstaklingi í stöðu verkefnastjóra í hugbúnaðarþróun Samgöngustofu. Viðkomandi mun sinna greiningu, innleiðingu og stýringu á hugbúnaðar­verkefnum. Samgöngustofa hefur sett fram heildarstefnu stofnunarinnar til næstu þriggja ára og er að efla starf í kringum stafræna vegferð til að byggja upp verkferla og þjónustu í kringum nýjustu tækni og rafrænar lausnir. Stefnan er skýr og markmiðið að auka hagkvæmni og skilvirkni, bæta upplýsingamiðlun og einfalda þjónustu fyrir hagaðila. Verkefnastjóri í hugbúnaðarþróun verður lykilstarfsmaður í framgreindri þróun. Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir stöðugum umbótum, stafrænni þróun og er sterkur liðsmaður. Um fullt starf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í tölvunarfræði, verkefnastjórnun eða verkfræði. Gerð er krafa um BS eða BA gráðu.
Góð tækniþekking skilyrði.
Starfsreynsla af sambærilegu starfi æskileg, sérstaklega er tekið tillit til reynslu af Agile-aðferðafræði og verkefnastýringu.
Reynsla af markvissu umbótastarfi og ferlagreininum er æskileg.
Mjög góð hæfni í samskiptum og þverfaglegri vinnu með hagsmunaaðilum við að tryggja framgang verkefna, eftirfylgni og fjarlægja hindranir.
Geta til þess að halda utan um mörg samhliða verkefni.
Gott vald á íslensku og ensku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining og undirbúningur verkefna með ferilseigendum. Virk þátttaka í þróun rafrænnar þjónustu stofnunarinnar.
Forgangsröðun, verkefnastýring og þekkingaryfirfærsla milli ferilseiganda og tækniteyma þannig að viðskiptalegir hagsmuni verkefna séu tryggðir.
Innleiðing nýrra verkefna, upplýsingagjöf og samstarf við hagaðila við prófanir og afhendingu lausna.
Þátttaka í samstarfi við Stafrænt Ísland á sviði stafrænnar þróunar hins opinbera.
Virk þátttaka í tæknilegri stefnumótun og útfærslu lausna.
Auglýsing birt24. febrúar 2022
Umsóknarfrestur7. mars 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Ármúli 2, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.Innleiðing ferlaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar