

Verkefnastjóri framkvæmda
Reitir leita að öflugum aðila til að verkefnastýra stórum og oft flóknum framkvæmdaverkefnum innan eignasafns Reita. Viðkomandi verður hluti af framkvæmdasviði og heyrir undir framkvæmdastjóra sviðsins. Framkvæmdasvið hefur umsjón með viðhaldi fasteigna félagsins ásamt framkvæmdum sem snúa að því að aðlaga húsnæði að þörfum leigutaka og auka verðgildi þess.
-
Verkefnastýring, rekstur og yfirumsjón með framkvæmdaverkefnum
-
Leiða teymi hönnuða og verktaka í verkefnum
-
Umsjón með samskiptum við leigutaka og aðra hagaðila
-
Umsjón með verkefnagátt til að tryggja yfirsýn og gegnsæi
-
Gerð og eftirfylgni tíma- og kostnaðar áætlana í verkefnum ásamt kostnaðargát
-
Aðkoma að innleiðingu á nýju skipulagi framkvæmdaverkefna innan Reita
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. byggingarverkfræði, byggingartæknifræði, byggingarfræði eða önnur sambærileg menntun
-
Reynsla af verkefnastjórnun verklegra framkvæmda
-
Framúrskarandi samskipta-, skipulags- og leiðtogahæfni
-
Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun











