
Byko
BYKO rekur eina stærstu byggingavöruverslun landsins í Breiddinni í Kópavogi, auk verslana á höfuðborgarsvæðinu og víða um land.
Saga BYKO hófst árið 1962 þegar Guðmundur H. Jónsson og Hjalti Bjarnason opnuðu fyrstu BYKO verslunina við Kársnesbraut í Kópavogi. Frá upphafi kappkostuðu félagarnir að veita viðskiptavinum sínum, fagmönnum jafnt sem almennum húsbyggjendum, framúrskarandi þjónustu. Þessi gildi frumkvöðlanna lögðu grunninn að uppbyggingu fyrirtækisins sem nú er leiðandi í sölu á byggingavörum hér á landi.
BYKO er fjölskyldufyrirtæki og skilar það sér í menningu félagsins. Hjá BYKO starfar fjölbreyttur hópur fólks af fagmennsku, framsækni og með gleðina í fyrirrúmi. Markmið okkar er ávallt að veita viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu heildarupplifunina af BYKO.
Við hjá BYKO trúum við því að starfsfólkið okkar sé okkar mikilvægasta auðlind til að ná árangri. Því hefur félagið sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun starfsfólks af BYKO sem vinnustað. Lykillinn að því að fá gott starfsfólk til starfa er að hafa gott orðsport, sterka ímynd og vinnustað sem starfsfólk mælir með. Framtíðarsýn okkar vinnur að því markmiði.
Við erum stolt af því að vera vottuð sem frábært vinnustaður af Great Place to Work. Við leggjum áherslu á að stuðla að trausti, vellíðan og helgun meðal okkar starfsfólks og er vinnustaðagreining Great Place to Work okkar verkfæri í þeirri vegferð.
Við leggjum áherslu á að mæta starfsfólki okkar þar sem það er á hverjum tíma. Fríðindi starfsfólks stuðla að heilbrigðari vinnustaðamenningu þar sem er sveigjanleiki og góð samþætting á vinnu og einkalífi.
BYKO hefur fengið vottun á jafnlaunakerfi sitt og hefur með því skuldbundið sig til að greiða starfsfólki sem sinna sömu eða sambærilegum störfum sambærileg kjör. Félagið undir gengur árlega úttekt af utanaðkomandi óháðum aðila til að viðhalda vottun félagsins.
Við bjóðum starfsfólki okkar upp á:
• Fjárhagslegan styrk í allt að þrjá mánuði í fæðingar- og
foreldraorlofi
• Samgöngustyrk
• Velferðarstyrk
• Aðgang að velferðarþjónustu Heilsuverndar
• Líkamsræktartyrk
• Frí rafbílahleðsla á flestum starfsstöðvum
• Sturtuaðstöðu á starfsstöðvum
• Sveigjanlegt og fjölskylduvænt starfsumhverfi
• Niðurgreiðsla á hádegismat
• Afsláttur á vörum í verslun
• Árshátíð og haustfögnuð
• Jólagjöf og páskagjöf
• Gjafir vegan starfsaldurs
• Fjarvinnu hluta úr viku fyrir störf þar sem það er möguleiki
Stjórnendur og starfsfólk BYKO leggja mikla áherslu á að styrkja starfsemina og bæta þjónustuna við viðskiptavini sína.
Á síðari árum hefur BYKO haslað sér völl erlendis, meðal annars með uppbyggingu á öflugu timburfyrirtæki í Lettlandi. Þar er unnið timbur og timburafurðir auk þess framleiðir verksmiðjan glugga og hurðir úr timbri, svo og álklædda timburglugga.

Verkefnastjóri
Við hjá Leigunni í BYKO erum að leita að metnaðarfullum verkefnastjóra til að ganga til liðs við okkur (tímabundið til fimm mánaða með möguleika á framlengingu) og aðstoða okkar öflugu liðsheild í að vinna að uppbyggingu starfseminnar í nýjum höfuðstöðvum á Selhellu í Hafnarfirði.
BYKO Leiga mun strax á nýju ári opna glæsilega nýja aðstöðu þar sem starfseminni verður loksins fundin framtíðarstaðsetning þar sem möguleiki til vaxtar er til staðar og aðbúnaður og aðstaða verður til fyrirmyndar.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af verkefnastjórnun, skilyrði
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að vinna skipulega og sjálfstætt
- Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, skilyrði
Helstu verkefni:
- Fagleg verkefnastjórnun og utanumhald um framvindu verkefnis
- Skilgreining og uppsetning á verkþáttum
- Utanumhald og eftirfylgni með uppbyggingu á nýrri starfsstöð Leigunnar
Hvetjum alla áhugasama til þess að sækja um, óháð kyni.
Allar frekari upplýsingar veitir Bragi Jónsson ([email protected]), rekstrarstjóri
Auglýsing birt13. október 2021
Umsóknarfrestur24. október 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skemmuvegur 2A, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri ferðaþjónustu
Íslandsstofa

Viltu taka þátt í að móta framtíð aflstöðva okkar?
Landsvirkjun

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Umhverfis- og framkvæmdarsvið - Teymisstjóri umhverfismála
Reykjanesbær

Verkefnastjóri í MICE
HL Adventure

Commissioning Manager
atNorth

Engineering Manager
Fenris Creations

Project Director
atNorth

Gæða- og umhverfisstjóri
Ferskar Kjötvörur

Vinnslustjóri
Samherji hf.