Alverk ehf.
Alverk ehf.

Verkefnastjóri

Okkur vantar góðan liðsauka. Umsækjendur þurfa að vera með reynslu af sambærilegum störfum, liprir í mannlegum samskiptum og með ríka þjónustulund.

Alverk er metnaðarfullt og framsækið stjórnunarfyrirtæki í mannvirkjagerð með megináherslu á framkvæmdir og ráðgjöf. Fyrirtækið starfar að mestu sem stjórnunar-, al- eða aðalverktaki.

Alverk vinnur í dag að mörgum krefjandi og spennandi verkefnum, bæði á byggingastigi og í þróun. M.a. svefnskála/gistihóteli fyrir Landhelgisgæsluna á öryggissvæði Keflavíkurflugvallar, 52 íbúða verkefni í Úlfarsárdal og stækkun hátækniseturs fyrir Aztiq/Alvotech í Vatnsmýri í Reykjavík. Erum að hefja byggingu á 115 íbúðum ásamt bílageymslu á Kirkjusandi í Reykjavík fyrir 105 Miðborg/Íslandssjóði. Svo erum við með á þróunarstigi 100 íbúðir
við Arnarbakka í Reykjavík.

Við horfum bjartsýn til næstu ára, verkefnastaða félagsins er góð, mörg spennandi verkefni í vinnslu og önnur í undirbúningi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf í byggingaverkfræði, byggingafræði eða byggingatæknifræði
Iðnmenntun og meistararéttindi á byggingasviði er kostur
Reynsla af sambærilegum störfum
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Gott vald á íslensku í rituðu og töluðu máli, ásamt góðri enskukunnáttu og kunnáttu í einu norðurlandamáli
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkþáttastýring
Framkvæmdaeftirlit
Þátttaka í hönnunar- og verkfundum
Gerð verkáætlana
Þátttaka í rýnifundum tengdum verkefna- og gæðastjórnun
Kostnaðargát/eftirlit
Kostnaðargreining
Þáttaka í öryggis- og gæðamálum
Auglýsing birt16. mars 2023
Umsóknarfrestur2. apríl 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bæjarflöt 5-7 5R, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkfræðingurPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar