Reykjanesbær
Reykjanesbær
Reykjanesbær

Velferðarsvið - Teymisstjóri ráðgjafar- og virkniteymi

Velferðarsvið Reykjanesbæjar auglýsir starf
teymisstjóra ráðgjafar- og virkniteymis laust til umsóknar.

Um er að ræða 100% starf fyrir öflugan leiðtoga á sviði félagsþjónustu sveitarfélaga sem vill ganga til liðs við metnaðarfullan hóp stjórnenda og sérfræðinga á velferðarsviði. Gerð er krafa um félagsráðgjafamenntun og góða leiðtogafærni, auk þess sem starfið gerir kröfur til rekstralegrar ábyrgðar, verkefnastjórnunnar og þverfaglegrar samvinnu.

Velferðarsvið leggur áherslu á að vinna að stefnu Reykjanesbæjar um velferð íbúa og samfélagsins til ársins 2030. Yfirskrift stefnunnar er Reykjanesbær í krafti fjölbreytileikans. Lögð er áhersla á að nýta til fulls kosti fjölbreytileikans og efla alla bæjarbúa til að búa sér og börnum sínum gott líf með virkri þátttöku í samfélaginu.

Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.

Helstu verkefni:

  • Vera leiðtogi ráðgjafar-og virkniteymis og gegna forystuhlutverki í teyminu
  • Ber ábyrgð á faglegri stjórnun verkefna teymisins, mannaforráðum og úrræðum
  • Ber fjárhagslega ábyrgð á þeim rekstrareiningum og útgjöldum sem falla undir teymið
  • Vinna sem ráðgjafi í málefnum notenda og vera sérfræðingum teymisins til stuðnings og ráðgjafar við úrlausn flókinna mála
  • Efla samstarf milli starfseininga og teyma í þágu þjónustunotenda, draga úr flöskuhálsum og hindrunum í þjónustu og byggja brýr á milli kerfa
  • Taka virkan þátt í starfi stjórnendateymis velferðarsviðs
  • Taka þátt í stefnumótun í velferðarmálum sveitarfélagsins
  • Innleiða framtíðarsýn og stefnuáherslur sveitarfélagsins í alla starfsemi teymisins

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Félagsráðgjöf til starfsréttinda/M.A. gráða eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi
  • Sterk leiðtogafærni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla eða þekking af stjórnun verkefna, mannauðsmálum og rekstri er kostur
  • Reynsla eða þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og hæfni til þverfaglegs samstarfs
  • Góð íslensku-og enskukunnátta
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt2. febrúar 2024
Umsóknarfrestur19. febrúar 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Tjarnargata 12, 230 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FélagsráðgjafiPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar