
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Velferðarsvið - Starfsfólk í dagdvalir aldraðra
Velferðarsvið Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í dagdvalir aldraðra. Um er að ræða tímabundna ráðningu með möguleika á fastráðningu.
Um er að ræða stöðugildi sem er 100% í dagvinnu. Dagdvöl aldraða er rekin á Nesvöllum og í Selinu.
Markmiðið með þjónustunni er að styðja aldraða einstaklinga til þess að geta búið á eigin heimilum sem lengst og rjúfa félagslega einangrun. Ásamt því að viðhalda og örva einstaklinga til betri andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu. Starfsfólk leitast við að veita öryggi og sinna þörfum hvers og eins.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun
- Aðstoð við perónulegt hreinlæti
- Félagsstarf
- Hvatning og stuðningur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með öldruðum kostur
- Góð íslenskukunnátta
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Jákvæðni og metnaður í starfi
- Sveigjanleiki
Hlunnindi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Auglýsing birt17. nóvember 2025
Umsóknarfrestur1. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Njarðarvellir 2, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiSamviskusemiTeymisvinnaUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði á endurhæfingardeild Grensási
Landspítali

Sameind rannsóknarstofa óskar eftir að ráða sjúkraliða í blóðsýnatöku
Sameind ehf.

Stuðningsfulltrúa vantar á Kleppsveg 90
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Teitur

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Starfsfólk í umönnunarstörf í vetur
Sóltún hjúkrunarheimili

Umönnun framtíðarstarf - Laugarás
Hrafnista

Hláturmild listaspíra óskar eftir aðstoð
NPA miðstöðin

Frístundaleiðbeinandi með stuðning
Hrafninn frístundaklúbbur

Umönnun - Sólvangur
Sólvangur hjúkrunarheimili

Teymisstjóri óskast á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið