Vélamaður í vinnuflokki á Suðurlandi
Starf vélamanns í vinnuflokki er laust til umsóknar. Vinnuflokkurinn sér um viðhald brúa á suður- og austurlandi þar sem Vegagerðin er veghaldari.
Ef þú hefur áhuga á að vinna í átta manna teymi sem vinnur úti allan ársins hring við fjölbreytt brúarvinnuverkefni á fjölbreyttum stöðum á suður- og austurlandi, þá viljum við heyra frá þér.
Vélamaður stjórnar vinnuvélum vinnuflokks og getur þurft að sinna smáviðgerðum og viðhaldi á vélum. Meðal verka er einnig vinna við smíði, steypu- múr og stál og önnur störf sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfssviðs hans.
Starfsmenn vinnuflokka vinna almennt á virkum dögum, nokkuð langa vinnudaga þar sem önnur hvor vika er styttri en hin. Þegar svo ber undir gæti þurft að vinna í 10 daga úthaldi.
Vinnuflokkar eru hluti af viðbragðskerfi samfélagsins vegna náttúruhamfara og geta verið kallaðir til starfa með stuttum fyrirvara þegar brýr verða fyrir skemmdum vegna flóða.
- Vinnuvélaréttindi, K skilyrði (lyftari lyftigeta yfir 10 tonn)
- Meirapróf æskilegt
- Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
- Reynsla af smíði, steypu- og múrvinnu er kostur
- Góð öryggisvitund
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
- Gott vald á íslensku
- Almenn tölvukunnátta