
Fjarðabyggð
Fjarðabyggð er það sveitarfélag sem austast liggur á landinu með rúmlega 5.500 íbúa. Það varð til við samruna 14 sveitarfélaga sem fór fram í nokkrum áföngum á árunum 1988 til 2018 og er Fjarðabyggð því eitt yngsta sveitarfélag landsins. Kjörorð Fjarðabyggðar er: Þú ert á góðum stað.
Í Fjarðabyggð eru stórbrotnir firðir og tignarleg fjöll aðeins brot af því besta. Menning og fjölbreytt mannlíf er ekki síður minnistætt þeim sem heimsækja sveitarfélagið. Eitt af öðru raða lágreist sjávarþorpin sér meðfram strandlengjunni, hvert með sínum bæjarbrag og áhugaverðu sérkennum.
Bæjarkjarnar sveitarfélagsins eru sjö talsins og jafnan kenndir við firðina eða víkurnar sem þeir standa við. Það er þó ekki einhlítt. Neskaupstaður í Norðfirði er fjölmennasta byggðin, með um 1.500 íbúa, en minnst er Brekkuþorp í Mjóafirði með 15 íbúa. Á Eskifirði eru íbúar um 1.000 talsins og tæplega 1.300 búa á Reyðarfirði. Á Fáskrúðsfirði eru íbúar um 700, um 200 manns búa á Stöðvarfirði og í Breiðdal búa einnig um 200 manns.
Fjarðabyggð byggir á sterkum grunni hvað atvinnu- og verðmætasköpun varðar. Gjöful fiskimið eru undan ströndum Austfjarða og er útgerð og vinnsla sjávarafurða ein af meginstoðum atvinnulífsins ásamt álframleiðslu og tengdum þjónustugreinum. Verslun og þjónusta gegna einnig mikilvægu hlutverki og hefur ferðaþjónusta vaxið hratt á undanförnum árum. Þá jókst mikilvægi landbúnaðar í Fjarðabyggð árið 2018 með sameiningu sveitarfélagsins við landbúnaðarhéraðið Breiðdal.

Veitustjóri
Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf veitustjóra fyrir Fjarðabyggð, en um er að ræða fullt starf auk bakvakta.Veitur á svæðinu eru hitaveita Eskifjarðar, fjarvarmaveita á Norðfirði og Reyðarfirði ásamt vatns- og fráveitu í Fjarðabyggð.
Menntunar- og hæfniskröfur
Tækni- eða iðnmenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af rekstri og framkvæmdum.
Þekking á áætlanagerð.
Þekking á helstu upplýsingatæknikerfum sem notuð eru í sveitarfélaginu.
Sjálfstæði í vinnubrögðum.
Frumkvæði og skipulagshæfni.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Bílpróf
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsmaður ber ábyrgð á daglegri stjórnun, umsjón og eftirliti með rekstri veitna í Fjarðabyggð
Sinnir viðhaldi og framkvæmdum við veitur með aðstoð starfsmanna þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar og verktaka.
Tekur þátt í mótun og gerð þjónustustefnu fyrir hita-, fjarvarma-, vatns-, og fráveitu með yfirmanni.
Kemur að mótun og gerð gæðakerfa fyrir veitur og vinnu samkvæmt þeim.
Hefur umsjón með þjónustu við aðrar deildir Fjarðabyggðar, samkvæmt verkbeiðnum eða samningum.
Auglýsing birt27. apríl 2022
Umsóknarfrestur22. maí 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hafnargata 1, 730 Reyðarfjörður
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFrumkvæðiÖkuréttindiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Tæknimaður í samsetningu og framleiðslu
Thor Ice Chilling Solution

Bifvélavirki á ferð
BL ehf.

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Rennismiður með reynslu af CNC rennibekkjum og fræsivélum
Héðinn

Skipuleggjandi viðhalds / Maintenance Planner
Alcoa Fjarðaál

Plastsuðumaður/Plastic Welder/Spawacz tworzyw sztucznych/Zavarivač plastike
VikNordik ehf.

Laghentur viðgerðarmaður
Stjörnugrís hf.

Framleiðslustarf - Production Worker
Icelandic Glacial

Reykjavík: Meiraprófsbílstjóri á dælubíl - Stífludeild
Íslenska gámafélagið ehf.

Vélvirki eða vélstjóri á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Pípulagningarmaður á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum
HS Veitur hf