Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir
Isavia Innanlandsflugvellir

Vaktstjóri flugvallarþjónustu Reykjavíkurflugvallar

Við leitum eftir metnaðarfullum leiðtoga sem hefur framúrskarandi samskipta- og stjórnunarhæfni og frumkvæði til að takast á við fjölbreyttar áskoranir í síbreytulegu umhverfi. Viðkomandi kemur til með að hafa daglega verkstjórn á starfsemi flugvallarþjónustu, ásamt að sjá um eftirlit og viðhald á flugvallarmannvirkjum og tækjum. Viðkomandi hefur umsjón með og framkvæmd snjóruðnings og hálkuvarna og sinnir flugverndar-, björgunar- og slökkviþjónustu.

Helstu verkefni

  • Samræming og hvatning starfsfólks til að ná sameiginlegum markmiðum

  • Vinnur að uppbyggilegri menningu innan deildarinnar, í samráði við aðra stjórnendur

  • Eftirlit og/eða viðhald með: Yfirborði flug- og akbrauta og hlaða, öðrum athafnasvæðum, vél- og tækjabúnaði, mannvirkjum, umhverfi flugleiðsögubúnaðar, flugvallarljósabúnaði, dýralífi, öryggissvæðum flugbrauta, aðskotahlutum (FOD), merkingum og skiltum á athafnasvæðum.

  • Framkvæmd á fuglafælingu, snjóhreinsun og hálkuvörnum, reglubundnum skoðunum á flugvallarsvæðinu.Skráning atvika og útgáfa flugupplýsinga í viðeigandi kerfum.

  • Sinna flugverndarhlutverki s.s. öryggisleit, eftirlit með óviðkomandi umferð um flugvallarsvæðið, girðingum og hliðum allan sólarhringinn.

  • Hlutverk samkvæmt flugslysaáætlun og neyðaráætlun flugverndar.

  • Að sinna björgunar- og slökkviþjónustu.

  • Hefur daglegt samráð og samvinnu við hluteigandi starfsmenn um verkefni sem fyrir liggja.

Hæfniskröfur

  • Reynsla af stjórnun er kostur

  • Meirapróf og vinnuvélapróf skilyrði

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Þekking á björgunar- og slökkviþjónustu og / eða flugvernd æskileg

  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum, samvinnu og skipulagi

  • Vilji til að mynda góða liðsheild

  • Góð þjónustulund, lausnamiðuð hugsun og jákvæðni

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð tök á íslenskri og enskri tungu

  • Standast þarf læknisskoðun ásamt þrek- og styrktarpróf

Nánari upplýsingar veitir Guðjón Ingi Guðmundsson þjónustustjóri í netfang gudjon.gudmundsson@isavia.is

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Auglýsing birt13. nóvember 2024
Umsóknarfrestur27. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Reykjavíkurflugvöllur 1, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Meirapróf DPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar