

Urriðaholtsskóli óskar eftir þroskaþjálfa á grunnskólastigi
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir þroskaþjálfa til að sinna stoðþjónustu á grunnskólastigi undir stjórn deildarstjóra stoðþjónustu. Teymiskennsla og teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
- Koma að sérkennslu og stoðþjónustu skólans
- Halda utan um þjálfun og daglegt starf barna með stuðning
- Vinnur með nemendum sem búa við margvísleg fjölþætt vandamál og vinnur að lausnum á þeirra málum
- Vinnur að áætlanagerð og mati sem og stuðningi annarra starfsmanna er koma að ákveðnum nemendum
- Foreldrasamstarf
- Leyfisbréf sem þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Reynsla af starfi í leik- og grunnskóla æskileg
- Reynsla af starfi með einhverfum æskileg
- Reynsla af hagnýtri atferlisgreiningu æskileg
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
*Fáist ekki starfsmaður með tilhlýðilega menntun er ráðinn annar hæfur starfsmaður sem vinnur þá undir handleiðslu og stjórn deildarstjóra sérkennslu og stoðþjónustu.
Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.
Íslenska










