

Urriðaholtsskóli óskar eftir atferlisþjálfa í stoðþjónustu Urriðaholtsskóla
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir háskólamenntuðum einstaklingum til að sinna m.a. stuðningi og þjálfum barna á leik- og grunnskólastigi. Teymisvinna er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Unnið er út frá atferlismótandi starfsháttum og er skólinn í samstarfi við Háskóla Íslands varðandi nám í hagnýtri atferlisgreiningu. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
- Sinnir atferlisþjálfun nemenda á leik- og grunnskólastigi og vinnur undir stjórn deildarstjóra stoðþjónustu skólans
- Koma að þjálfun, stuðningi og atferlismótun barna
- Halda utan um þjálfun og daglegt starf barna
- Vinna að áætlanagerð og mati á framvindu barna í samráði við deildarstjóra og kennara
- Situr teymisfundi og sinnir foreldrasamstarfi
- BS í sálfræði eða á sviði menntunar-, uppeldis- eða kennslufræði eða sambærilegt nám
- Viðbótarnám í hagnýtri atferlisgreiningu er skilyrði
- Reynsla af starfi í leikskóla og/eða grunnskóla æskileg
- Ánægja af því að starfa með börnum
- Frumkvæði, samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnu
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.
Íslenska




