Urriðaholtsskóli óskar eftir deildarstjórum á leikskólastig
Urriðaholtsskóli er samrekinn leik- og grunnskóli í Garðabæ. Auglýst er eftir deikdarstjórum til að taka þátt í að móta og byggja upp skólasamfélag þar sem áhersla er á skapandi starf með einstaklinginn í fyrirrúmi. Þetta skólaár eru leikskólabörn á 7 deildum frá þriggja til 5 ára en gert er ráð fyrir að leikskólabörnum fjölgi næsta skólaár og að skólastigið verði heilstætt hvað aldur varðar. Auglýst er eftir deildarstjórum á 3 deildir.
Teymiskennsla er einkennandi fyrir starfshætti skólans bæði á meðal nemenda og starfsmanna, svo og milli skólastiga. Gildi skólans eru: Virðing, ábyrgð og umhverfi. Starfsumhverfi er gott og lögð áhersla á að vinna eftir gagnreyndum aðferðum.
- Vinnur að uppeldi og menntun barna
- Að stýra daglegu fagstarfi deildar og skipulagi
- Vinnur að áætlanagerð og mati á námi barna og starfi leikskólans
- Er hluti af stjórnendateymi leikskólastigs
- Foreldrasamstarf
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði leikskóla
- Reynsla af starfi á leikskólastigi eða starfi með börnum er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt samevrópskum tungumálaramma
- Góð samskiptahæfni
- Reynsla af teymisvinnu æskileg
- Sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði
- Vera tilbúinn að fylgja stefnu skólans, að vinna með öðrum og um leið búa yfir frumkvæði og getu til að vinna sjálfstætt
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
- Á leikskólastigi Urriðaholtsskóla er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks
- Leikskólinn er opinn frá kl 07:30-16:30 mánudaga til fimmtudaga en frá 07:30-16:00 á föstudögum
- 25% stöðugildi á hverri deild vegna snemmtækrar íhlutunar
- Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru skipulagsdagar í leik- og grunnskólum bæjarins samræmdir
- Starfsmannaafsláttur er af leikskólagjöldum
- Frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og á Hönnunarsafnið sem og heilsuræktarstyrkur
Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.